Ég heiti Bonni og er bolabítur og ákvað að senda inn hrikalegan atburð sem gerðist fyrr hér í kvöld. ……….Baðið………. Ég hefði átt að fatta hvað gengi á þegar mamma mín var búin að þrífa allt húsið hátt og lágt og leit síðan á mig og sagði “ósköp ertu skítugur”. En ég var ekki nógu snöggur, ég lagðist undir borð og þóttist vera týndur. Þá kom það..ég heyrði renna í baðkarið. Mér fannst allir veggir þrengja að mér, en ég er bara svo feitur að ég vissi að sama þótt ég myndi hlaupa þá myndi hún ná...