Ég heiti Bonni og er bolabítur og ákvað að senda inn hrikalegan atburð sem gerðist fyrr hér í kvöld.

……….Baðið……….

Ég hefði átt að fatta hvað gengi á þegar mamma mín var búin að þrífa allt húsið hátt og lágt og leit síðan á mig og sagði “ósköp ertu skítugur”.
En ég var ekki nógu snöggur, ég lagðist undir borð og þóttist vera týndur. Þá kom það..ég heyrði renna í baðkarið.
Mér fannst allir veggir þrengja að mér,
en ég er bara svo feitur að ég vissi að sama þótt ég myndi hlaupa þá myndi hún ná mér.
“Komdu voffi” var kallað..úff ég reyndi að þykjast ekki skilja hvað þessi mannvera var að segja og labbaði í burtu,
en…hún var of sterk..hún greip mig og setti mig í vatnið.
Ég reyndi nokkrar tilraunir að hoppa uppúr en án árangurs…hún hafði greinilega skipurlagt þetta vel..fjandinn.
Ég var skrúbbaður framm og aftur og ég leit flóttalegur út um allt.
Plís ekki taka eftir nebbahrukkunni hugsaði ég en þá…..kom þvottapokinn…þetta verkfæri djöfullsins..núna er ég brotinn…hví ég hugsaði ég…afhverju fann hún ekki einhvern annann.
Mannveran brosti og sagði “ji hvað þú ert sætur lof mér að taka mynd” haha þarna var tækifærið…ég reyndi að hoppa úppúr en obbobobb ég gleymdi að ég var ekki léttur á fæti og datt aftur í baðið.
Afhverju þurfti ég að vera bolbítur afhverju er ég ekki guðdómlegur veiðihundur sem gæti hoppað og stungið af.
Hún kom aftur þessi hitler með myndavél og fleiri mannverur…allir sögðu guð minn góður sjáið krúttið en ég hugsaði að nú fengju allir sinn skammt af prumpi þegar ég kæmist úr þessu víti.
Efti nokkrar myndir af niðurlægingunni minni hélt hún áfram. Ég hélt að þessari stund myndi aldrei enda.
En tadamm hún tók tappann úr, loksins virkar hugarorkan mín.múhahaha.

Eftir töluverða þurrkunn með hitablásaranum slapp ég….núna skulu þau sko finna fyrir því,ég ætla út og velta mér úr rigningunni…vil sko ekki vera hreinn.
Prump,rop og fruss á mannverurnar munu vera mínar hefningar…næst slepp ég..múhaha.

Mótmælum baði bræður og systur!