Er meira að hugsa þetta til þessa að taka upp scratch tökur af lögum í vinnslu í aðeins betri gæðum heldur en sound recorder bíður uppá. Las hinsvegar í einhverju review-i um þennan gæja að hann pikkaði ekki nógu vel upp tíðnir og fengi ekkert sound nema allt væri stillt í botn.
Ég tjékkaði á þessu, hef því miður ekkert of mikið um þetta segja, fannst þetta vera soldið mikið fm957 rokk. Samt ágætlega spilað og sungið. Nafnið þykir mér líka soldið langt og tilgerðarlegt(ekkert diss hér). En haldið áfram og gangi ykkur vel!
Ef þér líður betur með þessum jafnaldra þínum þá áttu hiklaust að skipta yfir. Bara að gera það á cammó hátt svo þú sért ekkki að mjölva hjartað í gæjanum. Þetta er svona spurning sem þú átt að spyrja dagbókina þína, því að þú veist ein hvað er rétt að gera í svona stöðu.
Útlitslega séð er þessi gítar ekki mitt kaffi. Og ég er ekki mikill Floyd Rose aðdáandi, ætla ekki að tjá mig frekar þar sem ég veit ekkert um þennan grip.
Ég nota lizard spit orange oil til að þrífa fret boardið, fékk það í tónastöðinni og það virkar fínt. Og það sem Höddi sagði, þrífa skítinn af áður en þú bónar! Ég nota líka Lizard Spit bón og það skilar sínu!
Bad Dog Distortion, keypti hann ungur eftir að hafa fengið fyrsta rafgítarinn og magnarann. Þessi pedall gerði ekkert annað en að prumpa út tónunum í hávaðaskýi. Annars hef ég haft fína reynslu af þeim pedölum sem ég hef verslað.
Góðar pælingar, en það sem mér finnst vera skrýtnara að ef einhver lýsir yfir að hann sé “rythm” gítarleikari í bandi þá álætur fólk sjálkrafa að hann hljóti að vera slakari hljóðfæraleikari heldur en “lead” gítaristinn. John Lennon var t.d. “rythm” gítaleikarinn í Bítlunum en það má deila um það hvort hann hafi verið eitthvað slakari gítarleikar en Harrison(veit að þetta er /metall en þið fattið samhengið).
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..