Ég er í alveg rosalegu veseni og væri mjög glöð ef þið nenntuð að lesa þetta og svara mér af alvöru, en ekki koma með einhver skítakomment takk !

Sko, ég á kærasta sem er soldið eldri en ég, en ég hef aldrei tekið neitt sérstaklega fyrir aldursmuninum fyrr en núna… Á kvöldin um helgar þá langar mig að vera úti með vinum mínum (sem eru jafnaldrar mínir) og vera að rúnta eða hittast bara og spjalla og svona… En hann er alltaf bara með bjór í annari og vill svo hafa mig í hinni og liggja uppí rúmi og hafa kósý.. Það er alveg gaman stundum, en ekki hverja einustu helgi…

Núna um helgina hins vegar ákvað ég að fara og hitta vini mína og við vorum bara á rúntinum langt fram á nótt, svo fóru allir að týnast heim og svona en ég og einn vinur minn vorum bara ein eftir að rúnta… Við vorum bara að spjalla og hann tjáði mér það að hann væri svo hrifinn af mér og væri búinn að vera það lengi og skildi ekki hvað ég væri að gera með þessum strák þar sem hann væri miklu eldri en ég og hann væri búinn að upplifa allt þetta og vildi núna bara hafa það kósý, en ég ætti eftir að upplifa allt sem tengdist því að vera 17 ára unglingur… ég viðurkenni alveg að ég er heit fyrir þessum strák, en vildi ekki segja það vegna þess að ég er á föstu. En við fórum síðan heim til hans að horfa á mynd, og byrjuðum að kyssast, ég sagði honum að ég gæti þetta samt ekki því ég ætti kærasta, en svo hætti ég því vegna þess að mig langaði þetta svo mikið. Þetta endaði með að við sváfum saman og vá hvað þetta var æðislegt og skemmtilegt… Ég veit að mér hefði átt að líða illa og fá geðveikt samviskubit, en ég er ekki með vott af samviskubiti.

Núna er ég þvílíkt búin að vera að hugsa þetta, hvort ég og kærastinn minn eigum virkilega vel saman. Ekki beint útaf hinum stráknum, væri ekkert að fara að hætta með mínum og byrja með honum, en þetta bara fékk mig svo mikið til að hugsa um þetta. Hann eldri en ég og vill bara vera í rólegheitum og þannig, en ég vil fá að vera 17 ára og lifa soldið lífinu. Vera á rúntinum fram eftir nóttu og fíflast og svona…
Hvað finnst ykkur kæru hugarar?
Afsaka stafsetningar villur sem kunna að vera í textanum hér fyrir ofan!:)