1. Með hvaða hljómsveit eða flytjanda áttu flestar hljómplötur? Bob Dylan, 28 diskar 2. Hvað var síðasta lagið sem þú hlustaðir á? New York City Serenade með Bruce Springsteen 3. Hvaða hljómplata er mest á fóninum hjá þér þessa dagana? Ég var að kaupa mér Show Your Bones með Yeah Yeah Yeahs þannig að ég hef verið að hlusta á hana soldið um helgina. 4. Spilarðu á eða langar þig að læra á eitthvað hljóðfæri? Spila á gítar, langar að læra á píanó. 5. Hver er uppáhalds íslenska hljómsveitin þín?...