Nýjar aldursmerkingar í bíó, sjónvarpi og tölvuleikjum
Frá og með 1. júlí síðastliðnum tóku í gildi ný lög um eftirlit með aðgangi barna að kvikmyndum og tölvuleikjum. Með nýjum lögum falla eldri lög um skoðun kvikmynda og bann við ofbeldismyndum úr gildi og verður starfsemi Kvikmyndaskoðunar lögð niður frá sama tíma.



Frá og með 1. júlí síðastliðnum tóku í gildi ný lög um eftirlit með aðgangi barna að kvikmyndum og tölvuleikjum. Með nýjum lögum falla eldri lög um skoðun kvikmynda og bann við ofbeldismyndum úr gildi og verður starfsemi Kvikmyndaskoðunar lögð niður frá sama tíma.

Samkvæmt nýjum lögum skulu aðilar sem framleiða kvikmyndir eða tölvuleiki til sýningar eða sölu hér á landi, eða hafa kvikmyndir eða tölvuleiki til sýningar, leigu, sölu eða annarrar dreifingar, í atvinnuskyni hér á landi taka við því hlutverki sem Kvikmyndaskoðun gegndi samkvæmt eldri lögum.

SMÁÍS (Samtök Myndrétthafa á Íslandi) mun sjá um að samræma merkingar og hanna verklagsreglur sinna félagsmanna vegna nýrra laga. Jafnframt munu samtökin á komandi mánuðum koma upp miðlægum gagnagrunni þar sem niðurstöður mats verða opinberlega birtar og almenningur getur aflað sér upplýsinga um niðurstöðu aldursmerkinga einstakra mynda, þátta eða tölvuleikja. Einnig verður komið upp verklagi fyrir kvörtunarferli. Þá mun SMÁÍS einnig taka við gagnagrunni sem Kvikmyndaskoðun hafði áður undir höndum.

Frá 1. júlí munu því neytendur sjá nýjar merkingar um aldursflokkun á kvikmyndum sem gefnar eru út af félagsmönnum á DVD eða eru sýndar í kvikmyndahúsum. Á komandi mánuðum munu sömu merkingar ná yfir sjónvarpsefni einnig. Við flokkun tölvuleikja verður áfram stuðst við svokallaðar PEGI merkingar sem er samevrópskt flokkunarkerfi og eru þær merkingar að finna á öllum tölvuleikjum sem fluttir eru inn af félagsmönnum SMÁÍS.

Nýjar merkingar byggja á tveimur aðskildum en samverkandi þáttum. Fyrri þátturinn er aldursflokkun en aldursflokkarnir eru: “L” (leyfð), “7”, “12”, “16” og “18”. Hinn þátturinn eru efnisvísar myndarinnar. Fjöldi efnisvísa getur verið allt upp í sex og sýna þeir fram á ástæðu þess að myndefnið er ekki við hæfi ákveðins aldurshóps. Efnisvísarnir eru: ofbeldi, kynlíf, eiturlyf, hræðsla, fordómar/misrétti og blótsyrði. Þess má geta að við hönnun efnisvísanna var leitast við að nota sömu tákn og er að finna á PEGI tölvuleikjamerkingum, til einföldunar fyrir neytendur en PEGI kerfið styðst einnig við sömu aldursflokkun og efnisvísa. Samningaviðræður við ISFE (Interactive Software Federation Europe) sem á og rekur PEGI merkingarnar um notkun á þeirra efnisvísum eru í gangi og er búist við að þeim ljúki á næstu dögum.

Aldursflokkarnir munu áfram halda þeim litum sem Kvikmyndaskoðun hefur notað í gegnum árin og þannig verður merki aldursflokksins “L” (leyfð) grænt að lit o.s.frv. Allar merkingar fyrir myndefni verða kringlóttar og er þannig skilið á milli aldursmerkinga myndefnis og aldursmerkinga tölvuleikja sem verða ferkantaðar.

Eftirlit með að ákvæðum nýrra laga sé framfylgt er í höndum Barnaverndarstofu.
(tekið af bio.is)
—————————-

Þetta gerir mig pirraðan; af hverju ætti undir nokkrum kringumstæðum að gera mynd bannaða börnum innan 18?

Skoðanir?