Ég hef fylgst með Hlyni Snæ frá því að hann var nýfæddur, og hann er svo sannarlega duglegur strákur. Þið megið alveg búast við einhverjum veikindum fyrsta árið á leikskólanum, það var tilfellið þegar stelpan mín byrjaði á leikskólanum, hún kom heim með allar pestir sem voru í boði, og smitaði bróðir sinn, en hún er hinsvegar hætt að verða veik núna. Núna eru mín börn nýbyrjuð á nýjum leikskóla, og eru mjög ánægð, þau eru alls 19 á þeim leikskóla þannig að þetta er mjög afslappað andrúmsloft...