Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Map vote? (3 álit)

í Battlefield fyrir 18 árum, 3 mánuðum
Það er alveg sama hvaða modi ég dl'a, það er alltaf sama helvítis vandamálið. Þegar ég er búin að setja allt upp og orðin voða spenntur, load skjárinn farinn og svona, þá um leið og ég byrja borðið þá kemur einhver helvítis “map vote” panel sem að ég get ekki lokað og skyggir á skjáinn. Veit einhver um lausn á þessu og plz, ekkert skítkast. Með fyrirfram þökkum um góð svör.

Þarf aðstoð (1 álit)

í Tölvuleikir fyrir 18 árum, 5 mánuðum
Ég er að reyna að innstalla hjá mér Tiger Woods PGA Tour 2005. Leikurinn er kominn inn (hef prófað að innstalla honum bæði í typical og complete) enn svo þegar að ég ætla að fara í hann þá biður hann um að ég láti disk 3 í. Jafnvel þótt hann sé í. Ef ég smelli svo á “OK” og disk 3 er í drifinu þá dettur leikurinn út. Hefur einhver annar lent í þessu og veit einhver hvernig á að redda þessu ? Með von um góð svör.

Bensíntankur á Fiat Uno (1 álit)

í Bílar fyrir 19 árum
Ég er búinn að vera að velta þessu fyrir mér. Er mögulegt að fá stærri bensíntank í Fiat Uno og ef svo, hvað mundi það eiginlega kosta?

Bara enn einn lúserinn... (0 álit)

í Ljóð fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Rafgular gjálfra leifarnar í flöskunni og minna mig á ælubragðið uppi í mér. Ég æli aftur og staulast heim á leið fullur efasemda um að ég komist þangað og líka bara plain fullur. Reyni að hafa augun á götunni en ég er ófær um að sjá hana. Ég dett og sofna í nöpru fjúkinu. Ég kemst aldrei heim framar.

Damn'it! (1 álit)

í Ljóð fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Hvernig er hægt að lýsa tilfinningum sínum? Engin orð eru til sem að eiga alveg við mig, ég fell ekki inn í orðaforðann. Þvílík vandræði. Get ég höstlað út á að vera ólýsanlegur? Ekki lengur, varð vongóður eitt augnablik enn er núna vonsvikinn.

Þrá hyggjandi (1 álit)

í Ljóð fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Heltekinn get varla sofið, þú ert alltaf í huga mér. Daga og nætur, kvölds og morgna, allar stundir ég hugsa um þig. Yrki þér kvæði, geng hjá þínu húsi, matast vart! Sé þig svo í vinnunni á þriðjudegi, þú ert eins sú gyðja sem ég tilbið að kveldi. Missi áhugann. Djöfull er nýja stelpan hot! Gleymi þér. Dreymi um hana daga og nætur, kvölds og morgna, hverja stund! Yrki henni kvæði, geng svangur fram hjá hennar húsi! Unns ný kona birtist, inn í mína mund.

Morgun (0 álit)

í Ljóð fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Fögur er dögun í desember, drífur niður snæinn. Fölt er læri er liggur hér, lausafönn, undir þar nárinn

Ást, eða svoleiðis (0 álit)

í Ljóð fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Heltekinn get varla sofið, þú ert alltaf í huga mér. Daga og nætur, kvölds og morgna, allar stundir ég hugsa um þig. Yrki þér kvæði, geng hjá þínu húsi, matast vart! Sé þig svo í vinnunni á þriðjudegi, þú ert eins sú gyðja sem ég tilbið að kveldi. Missi áhugann. Djöfull er nýja stelpan hot! Gleymi þér. Dreymi um hana daga og nætur, kvölds og morgna, hverja stund! Yrki henni kvæði, geng svangur fram hjá hennar húsi! Unns ný kona birtist, inn í mína mund.

Hugmynd að leikaðferð (5 álit)

í Battlefield fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Ég er með hugmynd. Eins og flestir vita gengur leikurinn oftast, ef ekki alltaf, þannig fyrir sig að það er hver maður fyrir sjálfan sig. Það eru aldrei nokkrir í hóp ( ég er ekki að tala um að þeir séu svo þétt upp við hvorn annann að Mig geti stútað þeim öllum með einni sprengju). Hvað ef að menn myndu nú taka sig til og setja saman litlar 3 manna sveitir? Dæmi: Í Flaming Dart held ég að 3 menn, einn með SA-7, annar með RPD og þriðji með SVD gætu valdið miklum skaða ef að þeir væru saman í...

Ég veit ekki??? (4 álit)

í Rómantík fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Þannig er mál með vexti að stelpa sem var með mér í bekk er að fara til Brasilíu sem skiptinemi. Ég hef aldrei umgengist þessa stelpu neitt þannig lagað, bara spjallað svolítið við hana ef ég hef hitt hana utan skóla. Þegar hún sagði mér þetta var hún með tveim öðrum stelpum sem voru með okkur í bekk og þær eru líka að fara út sem skiptinemar, önnur til Svíþjóðar og hin til Sviss. Þegar að þær sögðu mér þetta samgladdist ég þeim auðvitað þvílíkt en 30 mín. seinna þegar ég var kominn heim þá...

3:45 AM (1 álit)

í Ljóð fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Harkaleg Kópal-dögun Sljóvguð skilningarvit mín. En hvað ég er einmana.

Nótt, haf, tungl (3 álit)

í Ljóð fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Gulhvít tunglið speglast í öldunum sem gjálfra við hvítmálaðan árabát. Bak klætt hvítri skyrtu flýtur meðal aldnanna. Ég kveiki mér í rettu, horfi tárvotur á hvíta rekaldið, keyri í burt og finn ekki fyrir neinu Aldreimeir.

Vorþýr (1 álit)

í Ljóð fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Ef þú átt leið um Eyjafjörð, er Fálkafellið hrópar. Taktu þá eftir bátunum sem að landa á höfninni. Einhverstaðar þar situr elskan mín og flakar. Mig grunaði ekki að ein manneskja gæti orðið svona óþolandi. Ég ætla að dömpa þessari beyglu strax í kvöld!

Lokasannleikur (0 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum
Hvað er það sem drífur manninn áfram í þessari endalausu sannleiksleit sinni? Er það fullvissan um að við munum drottna yfir hnettinum og heimi þessum þegar nóg er vitað? Hvernig er hægt að fá nóg út úr óendanleikanum? Er það ekki svo að sá sem allt veit veit meira en hann kærir sig um að vita? Hvar látum við staðar numið? Kannski hefur það nú þegar skeð. Kannski er maðurinn sífellt endurskapaður af sjálfum sér aftur í yndislega vitsmunaþurrð hamingjunnar. Kannski er lokasannleikurinn sem að...

Stríð (0 álit)

í Smásögur fyrir 20 árum, 3 mánuðum
HVELLUR! Ég hrekk upp og stekk á lappir, maður hætti líka að geta sofið rólegur fyrir tveim árum. Ég miða riflinum í kringum mig til að sjá hvort nokkur hafi komið inn í groddalegar húsarústirnar. Þessi kofi hefur orðið fyrir árás örugglega þegar þessi andskotans vitleysa byrjaði hvenær svo sem hún byrjaði, síðan þá eyðir maður öllum dögum eins, reyna að útvega sér mat, stað þar sem maður getur getur sofið án þess að vera drepinn meðan maður sefur og dót sem gæti komið manni að einhverju...

Sortnar sjón (0 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Ég finn feigð mína nálgast, en bærist ei. Bíð eftir að einhver vilji kveða upp dánardóm, en heyri ekkert. Bíð eftir að einhver dragi hvítt lak yfir hausinn á mér, en ekkert gerist. Afhverju þetta fjárans ekkert, af hverju sinnir mér enginn? Skúringakona kjagar kiðfætt inn, skúrar og fer. Hún horfði ekki einu sinni á mig, eins og ég sé ekki þarna. ,,Ertu að hlusta á mig Guðjón, þú átt að keyra mig niður í saumaklúbb og þrífa svo neðri hæðina og vera búinn að sjóða ýsuna þegar þú kemur að ná í...

Bandaríkjamenn. (9 álit)

í Deiglan fyrir 21 árum, 1 mánuði
Að mínu mati er þónokkuð til í því sem að Michael Moore sagði en það var eitthvað á þessa leið ,,Í USA búa 280 milljónir manna. Að minnsta kosti 100 milljónir af þeim eru hálfvitar´´ Ég er ekki á móti öllum í USA, ég er bara á móti þessum útvöldu fíflum sem að verða öllu fólkinu þar til háborinar skammar. Ég skal nefna nokkur dæmi. 1. Þingmaður nokkur í BNA lét breyta nafninu á frönskum kartöflum í mötuneytinu hjá þinginu þar í landi úr ,,French fries´´ yfir í ,,Freedom fries´´ eftir að...
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok