Heltekinn get varla sofið, þú ert alltaf í huga mér.
Daga og nætur, kvölds og morgna, allar stundir ég hugsa um þig.
Yrki þér kvæði, geng hjá þínu húsi, matast vart!
Sé þig svo í vinnunni á þriðjudegi, þú ert eins sú gyðja sem ég tilbið að kveldi.
Missi áhugann.
Djöfull er nýja stelpan hot!
Gleymi þér.
Dreymi um hana daga og nætur, kvölds og morgna, hverja stund!
Yrki henni kvæði, geng svangur fram hjá hennar húsi!
Unns ný kona birtist, inn í mína mund.
For in that sleep of death what dreams may come.