Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Lana

í Sápur fyrir 18 árum, 8 mánuðum
ohhh maður er búinn að fylgjast með þessum þáttum í 15 ár og svo núna loksins þegar það kemur lessuatriði þá missir maður af því :(

Re: Bassa effect

í Hljóðfæri fyrir 18 árum, 9 mánuðum
Þarft engan effect fyrir slap og pop. Notar bara equalizerinn á magnaranum, hækkar treble og lækkar miðjuna. Ekki nema það sé svona lélegur equalizer á magnaranum hjá þér, þá geturu notað equalizer effect.

Re: Bassa fret

í Hljóðfæri fyrir 18 árum, 9 mánuðum
Neinei hann þarf ekkert að kaupa nýjan háls, það er alveg hægt að skipta um böndin. En ég held það sé bara alveg rándýrt og sennilega ódýrara að kaupa nýjan háls.

Re: Enn ein könnunarkvörtunin

í Hljóðfæri fyrir 18 árum, 9 mánuðum
Það að 1/5 segi “Annað” bender líka til að það vanti fleiri tegundir til að velja um.

Re: Bassi óskast.

í Hljóðfæri fyrir 18 árum, 9 mánuðum
Ég myndi nú frekar kaupa mér betri notaðan bassa heldur en nýjan Fender Precision Standard frá Mexíkó. Hægt að fá góða notaða bassa á 50 þús.

Re: Það sem er að gerast í leikmanna málum í dag

í Körfubolti fyrir 18 árum, 9 mánuðum
Heitir hann ekki örugglega Zydrunas Ilgauskas??

Re: come back

í Körfubolti fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Ertu þá að meina seinna comebackið?? Nefnilega í fyrra comebackinu þá vann Bulls þrjá titla í röð, in case you didn't know.

Re: Nirvana

í Rokk fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Veit ekki betur en að Dave Grohl hafi trommað á Nevermind sem kom út ‘91 svo hann byrjaði varla í bandinu rétt fyrir ’92.

Re: Eldsneytisverðið í dag!

í Tilveran fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Fylgstu með fréttunum maður!!! Heimsmarkaðsverð á olíu er í sögulegu hámarki. Það er ekki stjórnendum olíufélaganna hér á landi að kenna. En að sjálfsögðu skilar það sér til okkar eins og til annarra staða í heiminum.

Re: Glæpsamleg einokun

í Deiglan fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Smelltir 11 kg, 5 kg og 2 kg gaskútar hafa verið til í fleiri áratugi. Gott ef smelltir 11 kg kútar komu ekki á undan skrúfuðu 11 kg kútunum hérna í árdaga gasnotkunar Íslendinga. Ég vann á bensínstöð í 8 ár og veit allt um gasvörur svo ég þekki þetta. Það er reyndar ár síðan ég hætti svo þú ert kannski að tala um einhverja nýja tegund af smelltum kútum, eitthvað sem hefur komið nýtt síðan ég hætti í bransanum.

Re: didsérídú

í Hljóðfæri fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Ætli það sé ekki best að tala við einhvern klassískan blástursleikara, þeir læra örugglega margir hringöndun.

Re: Detroit - San Antonio, leikur 2

í Körfubolti fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Ég hef nú haldið með Chicago Bulls alla mína hunds- og kattartíð og mér rennur því blóðið til skyldunnar að hata Detroit. Spurs er líka mitt lið í Vesturdeildinni svo það er engin pína að halda með þeim á móti Detroit hvort eð er. Það var því mjög ánægjulegt að horfa á annan leikinn í seríunni, hversu auðveldlega Spurs tóku þá. Þó varð maður aðeins smeykur þarna í fjórða þegar Pistons náðu þessu niður í átta stig. En var ekki McDyess með 12 stig í fyrri hálfleik? Hann fór þá varla í gang í...

Re: Úrslitaeinvígi NBA

í Körfubolti fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Ef þú ert að tala um lagið sem er oft undir kynningum þá notaði Bulls það alltaf undir kynningum og gerir kannski enn. Getur fundið það og downloadað undir Bulls theme eða einhverju álíka. Mig minnir að ég hafi fundið það undir Bulls theme.

Re: lög með auðveldum bassalínum?

í Hljóðfæri fyrir 18 árum, 11 mánuðum
ef hann vill mjög auðveld lög þá er einmitt fínt hjá honum að byrja á zombie með cranberries, já og where is my mind með pixies. örugglega léttustu lög sem til eru á bassa.

Re: lög með auðveldum bassalínum?

í Hljóðfæri fyrir 18 árum, 11 mánuðum
vá farðu bara á einhverjar tabsíður, t.d. ultimate-guitar.com, og finndu auðvelt lag. getur líka farið á íslensku tabsíðuna, gítar.is held ég, og fundið fjöllin hafa vakað eða stórir strákar fá raflost. hvort tveggja mjög auðveld lög með egó.

Re: Útikörfur til sölu?

í Körfubolti fyrir 18 árum, 11 mánuðum
ég er með körfu heima hjá mér. einu sinni var ég með net úr einhverju járni, ekki stál reyndar og það ryðgaði en það skiptir svo sem engu. en það var bara óþægilegt að hafa þetta. netið skemmdi boltann og síðan var þetta bara hættulegt ef maður sló hendinni óvart uppí netið þá fékk maður stundum skurði á puttana og hendurnar og þurfti að hætta að spila :( ég var með þetta net í eitt sumar en skipti svo aftur í nylonnet og sé ekki eftir því.

Re: Vitiði um góðar útikörfur?

í Körfubolti fyrir 18 árum, 11 mánuðum
núna er búið að skemma aðra körfuna með því að hanga í henni.

Re: Alex F vs. The Most Annoying Thing

í Músík almennt fyrir 18 árum, 11 mánuðum
Lagið heitir reyndar Axel F. Axel Foley you know.

Re: Bassastrengur ... -A-

í Hljóðfæri fyrir 18 árum, 11 mánuðum
Þú kaupir ekkert stakan streng í bassa. Það sándar ömurlega að vera með einn nýjan streng og kannski af annarri tegund en hinir strengirnir. Kaupir bara sett handa vini þínum. Ágætis strengir kosta ekki nema 2-3000 kall.

Re: Bassamagnari til sölu

í Hljóðfæri fyrir 18 árum, 11 mánuðum
Hvernig bassi var þetta sem þú varst með á úrslitakvöldinu í Músíktilraunum Leifur? 5 strengja ólakkaður minnir mig?? Kveðja Vambi

Re: Úrslitin í Eurovision

í Söngvakeppnir fyrir 18 árum, 11 mánuðum
En þetta hefur alltaf verið svona :) Ekkert nýtt.

Re: Úrslitin í Eurovision

í Söngvakeppnir fyrir 18 árum, 11 mánuðum
Rúmenía er ekki á Balkanskaganum. En Grikkland er hins vegar á Balkanskaganum og það vann. En einkunnagjöfin er ekkert minna svona nágrannaeinkunnagjöf hérna í Vestur-Evrópu en í Austur-Evrópu. Sjáið bara Norðurlöndin, þau kjósa langmest hin Norðurlöndin.

Re: Úrslitin í Eurovision

í Söngvakeppnir fyrir 18 árum, 11 mánuðum
Ef Frakkland, Bretland, Spánn og Þýskalandi settu ekki pening í þessa keppni þá væri engin keppni. Þessi lönd reka þessa keppni og þess vegna eru þau alltaf í úrslitakeppninni.

Re: Hjóðfæri

í Hljóðfæri fyrir 18 árum, 11 mánuðum
BASSA Get líka trommað eitthvað Hef stundum tekið mér gítar í hönd og ætlað að læra nokkur grip…en vá!! það er enginn háls á þessu drasli og strengirnir eru mjóir og asnalegir…ojjj

Re: Ertu hljómsveit?

í Hljóðfæri fyrir 18 árum, 12 mánuðum
ohh ekki vera svona heimskur!! þetta átti að vera svona. er að spyrja hljómsveitina sem les þetta hvort hana vanti bassaleikara!!
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok