Jæja, ég þekki þetta ekki sjálfur, ég hef aldrei getað fengið mig til að geta haldið mig við einhverja eina tónlistarstefnu, og hlusta mikið á ósungna tónlist, eða sungna á glossolaliu. Annars finnst mér voða mikið til af algerum póser metal, ég meina, hafa einhverjir hérna lent í bardaga, blótað til Satans með fullri alvöru eða borðað lík? Ég hef heyrt þetta allt í metaltextum. Ég hef það þó gott um þá metalhausa sem ég þekki persónulega að þeir eru besta fólk, opnir, hjálpsamir og vinsamlegir.