Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Steinn28
Steinn28 Notandi síðan fyrir 20 árum, 7 mánuðum 35 ára karlmaður
270 stig
“I'd love to go back to when we played as kids,

Tharf Instrumental version af islensku rappi (6 álit)

í Hip hop fyrir 16 árum, 3 mánuðum
Hae hugarar eg er staddur uti i bandarikjunum og tharf naudsynlega ad fa instrumental utgafu af islensku rappi. Eg vildi helst Bent Nalgast med Rottweiler, en onnur log med rottweiler vaeru vel thegin. eg tharf thetta mjog mikid svo eg yrdi virkilega thakklatur ef thu gaetir hjalpad mer. Ef thu att eitthvad af thessu, geturu tha annadhvort sett thad herna inn eda sent mer thad a steiniboy[removethis]@hotmail.com

Týnd atkvæði í Florida (14 álit)

í Deiglan fyrir 19 árum, 6 mánuðum
Núna hefur komið í ljós að í flutningum töpuðust um 58.000 utankjörstaðaratkvæði í Broward sýslu í Florida. Persónulega kom mér þetta ekki mikið á óvart, það að atkvæði mundu týnast í Florida. Það vita það nú flestir að forsetakosningar eru í Bandaríkjunum 2. nóvember næstkomandi og að í seinustu kosningum réð Florida úrslitum. Þar munaði aðein 500-600 atkvæðum. Ég ætla ekkert að fullyrða um þetta en er það tilviljun að af öllum ríkjum Bandaríkjanna gerðist þetta í Florida. Ég skoðaði...

Endurskoðun stjórnarskrárinnar (22 álit)

í Stjórnmál fyrir 19 árum, 6 mánuðum
Hérna koma nokkrir punktar um endurskoðun stjórnarskrárinnar, hvað mér finnst að eigi að laga og koma nýtt inn. 1. kafli Í fyrsta kafla er kveðið á um að Ísland sé lýðveldi með þingbundinni stjórn og um þrískiptingu ríkisvaldsins. Þetta finnst mér engin spurning vera um að þurfi að skerpa á. Fjölmörg dæmi að undanförnu hafa sýnt að hinir þrír þættir ríkisvaldsins eru að dragast nær hvor öðrum og framkvæmdarvaldið er orðið allt of öflugt. Leiðir til lausnar eru fjölmargar og kem ég með...

Bandaríkin sem heimsveldi að hruni komin. (26 álit)

í Deiglan fyrir 19 árum, 7 mánuðum
Þó að ég segi í titlinum að USA séu að hruni komin meina ég ekki að þau séu eins og rómarveldi 450. Það sem ég er að tala um er að Bandaríkin hafa ekki lengur þau gríðarlegu völd sem þau hafa haft á alþjóðarvettvangi, og hafa þau ekki aukist við hrakfarirnar í Írak. Þó bandaríska hagkerfið standi enn um sinn traustum fótum og skipti höfuðmáli í heiminum er þróunin ekki því í hag. Ég er enginn hagfræðingur og ætla ekki að tala sem slíkur. Hins vegar sá ég fyrir stuttu að hagkerfið í Kína...

Fjármál (1 álit)

í Fjármál og viðskipti fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Þetta er mynd af Milton Friedman, einum merkasta hagfræðingi 20. aldar.

Heimspeki (0 álit)

í Heimspeki fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Þarna eru tveir af frumherjum heimspekinnar. Forn-grísku spekingarnir Plato og Aristoteles. Aristoteles var að sjálfsögðu nemandi Paltos og stofnandi fyrsta háskóla heimsins

Brandarar (0 álit)

í Húmor fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Þetta er ástæðan fyrir því að konur geta ekki gert við bíla. Þetta tengist þá ekkert hæfilekikum eftir allt saman.

Bækur (1 álit)

í Bækur fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Þetta er mynd af einum af uppáhalds höfundum mínum. Þetta er að sjálfsögðu Ernest Hemingway. Hann skrifaði bækur ein og Farwell to arms, Whom the bell tolls og fleiri magnaðar. Hann var að vísu mikill drykkjurútur en snillingur.

Myndlist (0 álit)

í Myndlist fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Þetta er ein af hinum gríðarfrægu sjálfsmyndum Rembrandts. Rembrandt er náttúrulega einn besti málari allra tíma og líklega enginn hefur verið honum fremri í gerð sjálfsmynda.

Sagnfræði (0 álit)

í Sagnfræði fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Þarna fór fram einn mannskæðasti bardagi bandarísku borgarastyrjaldarinnar og þarna flutti Abraham Lincoln sína frægustu ræðu. Þetta er Gettysburg

Skóli (0 álit)

í Skóli fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Menntaskólinn í Reykjavík við skólasetningu.

Stjórnmál (0 álit)

í Ljóð fyrir 19 árum, 8 mánuðum
X-B er bara málið. Mér finnst Framsókn vera svarið fyrir þá sem eru frekar til hægri en vilja samt ekki kjósa Sjálfstæðisflokkinn.

Heimurinn án stríðs (8 álit)

í Heimspeki fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Ég skrifaði þessa ritgerð fyrir skólann. Vonandi líkar ykkur hún. Inngangur Í þessari ritgerð má finna hugleiðingar mínar um heiminn án stríðs. Hverjar séu líkurnar á því að heimurinn verði stríðslaus í framtíðinni, af hverju ófriður ríki og einnig hvað mundi breytast ef stríð mundu hverfa. Yrði heimurinn betri? Yrði meira jafnrétti eða frelsi? Mundi hamingja íbúa heimsins aukast? Er möguleiki á því að mennirnir komi sér upp varanlegum friði sín í milli eða er ófriður hluti af mannlegu eðli?...

Hvaða heimsveldi var það merkilegasta? (0 álit)

í Sagnfræði fyrir 19 árum, 11 mánuðum

Hvað finnst ykkur um Tony Blair? (0 álit)

í Stjórnmál fyrir 19 árum, 11 mánuðum

Ef Alþingi yrði slitið á morgun......... (19 álit)

í Stjórnmál fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Ég ætla að gefa mér að stjórnarsamstarfið færi í vaskinn og Alþingi yrði slitið á morgun. Ef Alþingi yrði slitið þyrfti að sjálfsögðu að efna til nýrra Alþingiskosninga eins fljótt og auðið er. En hvernig mundu þessar kosningar fara í ljósi nýskeðs hneykslismáls (fjölmiðlafrumvarpið). Ég ætla að gera ráð fyrir að þeir 5 flokkar sem nú eiga fulltrúa á Alþingi og Frjálshyggjufélagið þar að auki verði í framboði. Ég ætla að taka það fram að ég studdi Framsóknarflokkinn fyrir svona 3 vikum. Nú...

Hvert samræmdu prófanna fannst þér erfiðast? (0 álit)

í Skóli fyrir 19 árum, 11 mánuðum

Skítlétt stærðfræðipróf (8 álit)

í Skóli fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Ég var að taka samræmda stærðfræðiprófið áðan og vá hvað það var létt. Það voru aðeins örfá atriði sem voru eitthvað strembin. Stærðfræði er reyndar mitt uppáhaldsfag, en þetta var mun léttara en prófið í fyrra. Það sem mér fannst persónulega erfiðast var þetta með ferninginn inni í hringnum. Maður átti að reikna flatarmál svæðanna á milli hringsins og ferningsins. Ég held að flatarmál ferningsins hafi verið 2 cm2 og flatarmáls hringsins pí cm2. Því var flatarmál lituðu svæðanna pí-2. En...

Er ókeypis að downloada af DC? (1 álit)

í Netið fyrir 20 árum
Veit einhver hvort það kosti aukalega að downloada af íslenskum höbbum á DC?<br><br>“I believe that people that are going to commit crime shut not have guns.” George W. Bush

Relationship of Command með At the Drive-in (24 álit)

í Rokk fyrir 20 árum
Ég ætla að skrifa aðeins um plötuna Relationship of command með At the Drive-in. At the Drive-in var stofnuð í byrjun tíunda áratugarins af fjórum strákum frá El Paso í Texas. Þetta voru þeir Cedric Bixler (söngur), Omar Rodriguez (gítar), Jim Ward (gítar), Paul Hinojos (bassi) og Tony Hajjar (trommur). Árið 1994 kom út fyrsti singullinn þeirra og fékk hann nafnið Hell Paso. Þeir fylgdu honum eftir með tónleikaferð um The Lone Star state (aukanefni Texas). Þeir höfðu gefið út diskana In...

Er Davíð að færa Sjálfstæðisflokkinn til vinstri? (14 álit)

í Stjórnmál fyrir 20 árum
Ég hef verið að velta því fyrir mér hvort Davíð Oddson sé að færa Sjálfstæðisflokkinn til vinstri. Miðað við umræðuna síðustu vikur hefur þetta flogið um huga minn. Mér finnst alveg dæmalaust að hann skuli styðja og eða setja fram frumvörp eins og SPRON frumvarpið og nú fjölmiðlafrumvarpið. SPRON málið var að mínu mati einhver sú mesta valdníðsla sem framin hefur verim á Íslandi síðustu ár. Hvað annað er hægt að kalla svonalagað? Að stoppa löglegan viðskiptasamning, bara vegna þess að honum...

Hryðjuverk - eigum við að vara okkur á þeim? (9 álit)

í Deiglan fyrir 20 árum
Ég velti því oft fyrir mér hvort heimurinn sé orðinn óöruggari eftir 11.september 2001. Það er reyndar ekki rétt því ég hef fyrir löngu komist að niðurstöðu. Nei, heimurinn er ekki orðinn óöruggari. Í hryðjuverkunum dóu um 3.000 manns (u.þ.b. 0,001% Bandaríkjamanna). Þetta jafngildir því að 3 Íslendingar færust, ef miðað er við höfðatölu. Ef við setjum þessar tölur í samhengi við annað sem er að gerast í dag, fæ ég minnimáttarkennd fyrir hönd Osama Bins Ladens. Á hverjum degi deyja um 7.000...

Uppáhalds stórmótið þitt? (0 álit)

í Stórmót fyrir 20 árum
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok