Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Gítarleikara langar í post rock band (1 álit)

í Rokk fyrir 16 árum, 2 mánuðum
Er á 22 ári og er í Garðabænum, langar að komast í einhverja skemmtilega tónlist helst post rock, má líklegast vera hvernig sem er post rock. Hlusta mikið á Godspeed, My Exit Music, Mogwai, Do Make Say Think, Mono, Explosions In The Sky, God Is An Astronaut og svo auðvitað Sigur Rós. Tel mig vera ágætlega duglegan að semja en vil helst komast í band þar sem allir eru virkir og áhugasamir. Spila á Epiphone Elitist LP í gegnum Roland JC-120. Ef það er áhugi er um að gera að spjalla bara, er á...

Langar að komast í post rock samsetningu (0 álit)

í Hljóðfæri fyrir 16 árum, 3 mánuðum
Ég er 21 ára(á 22 ári) og spila á gítar. Spila á Epiphone Elitist Les Paul Standard í gegnum Roland JC-120. LP: http://a443.ac-images.myspacecdn.com/images01/91/l_4b9111b7cb3053de68c99fdfbb38c382.jpg JC-120: http://a783.ac-images.myspacecdn.com/images01/103/l_204869ea4fda48411e36af977fc8fb56.jpg Ég hef áhuga á að komast í hljómsveit þar sem lögð er áhersla á einhvers konar post rock. Til í rauninni hvað sem er held ég. Það sem ég hlusta á getið þið fundið á Myspaceinu mínu(niðri) og séð...

Den Rytmiske Hojskole (7 álit)

í Hljóðvinnsla fyrir 16 árum, 3 mánuðum
Ég er að fara í lýðháskóla í haust, ég valdi þennan skóla og er mikið að spá hvort ég ætti að velja gítarkennslu sem aðalfag, þar sem það er heittelskað áhugasvið hjá mér. Eða hvort ég ætti að stökkva út í eitthvað nýtt og óljóst, samt spennandi… hljóðvinnsluna. Ég hef mikinn áhuga á að læra að taka upp, læra á mica, setja upp hljóð fyrir tónleika og að hljóðblanda lög… held það sé spennandi svið. Málið er bara að ég hef aldrei prófað neitt þannig, þannig ég veit í raun ekki aaalveg hvað ég...

Verð á ökukennslu (19 álit)

í Tilveran fyrir 16 árum, 3 mánuðum
Daginn, langar bara að spyrja ykkur ungmennin hér… hvað eruð þið að borga fyrir ökutímann ykkar? Ég fór til ökukennara í gær og hann sagðist vera að rukka 6.500kr tímann og sagði það normal verð. Var ekki aaalveg að kaupa það þannig mér datt í hug að rannsaka, hringdi í bróður minn og hann var að borga um 5.000kr. Hvernig er það hjá ykkur, vitiði um einhvern sem rukkar minna? Þetta munar nefnilega slatta í heildina litið.

Ódýr en fín hljómborð? (9 álit)

í Hljóðfæri fyrir 16 árum, 5 mánuðum
Sæl, heyriði langar geðveikt að kaupa mér eitthvað ódýrt hljómborð. Ég kann ekkert á hljómborð né á píanó. Mig langar að nota þetta til að koma með bara svona smá píanó hluta inn í lög eða nota synthesizer til að spila undir, þ.e. eins og bassanótu. Hvernig eru þessi hljómborð í Rín og svona, er ekki hægt að fá fín hljómborð fyrir 30-40 þúsund?

Hvar kaupi ég tónlist af netinu? (6 álit)

í Músík almennt fyrir 16 árum, 5 mánuðum
Hvar er hægstæðast að kaupa tónlist á netinu? Vil helst fá svör frá reyndum aðilum. Ég er að hugsa um allt það sem orðið rokk nær yfir. Það er mikið og leita ég að miklu úrvali, ekki háum verðum og ekki of stóru businessi(eBay og Amazon t.d.). Takk takk Bætt við 30. nóvember 2007 - 01:22 Og ekkert í Bretlandi, helst í BNA eða evrulöndum.

Lýðháskólar í Norðurlöndum (10 álit)

í Ferðalög fyrir 16 árum, 5 mánuðum
Hefur einhver reynslu af svoleiðis, ef svo er þá má hann segja nákvæmlega frá hvað sú ferð gerði fyrir hann. Langar að vita mikið um hvernig þetta reynist manni.

TÞM (1 álit)

í Hljóðfæri fyrir 16 árum, 5 mánuðum
Veit einhver hvort það sé laust þar?

Æfingahúsnæði - endilega lesið (15 álit)

í Hljóðfæri fyrir 16 árum, 7 mánuðum
Ég hef verið að hugsa undanfarið um æfingarhúsnæðið sem ég er í. Þannig mig langaði að spyrja ykkur hvort þið þyrftuð að þrífa æfingarhúsnæðið sem þið eruð í og á sama tíma hvort leigjandinn noti húsnæðið líka? Ég er í rauninni að gera könnun því ég hef í hug að kvarta aðeins við leigjanda minn því við erum að borga honum 30 þúsund á mánuði fyrir fínt húsnæði, við ryksugum einu sinni í viku(Og ef fólk vill fara út í það þá er það ekkert stóratriði en það er samt princip mál, við borgum...

Góð íslensk horde guild (14 álit)

í Blizzard leikir fyrir 16 árum, 7 mánuðum
Var að spá… loggaði mig inná SOTP kallinn minn áðan, hef ekki verið að spila hann lengi. Verið bara að puvna með alliance kalli. En allavega, sé ekki fram á að SOTP sé að fara að gera eitthvað sérstakt í framtíðinni. Þannig ég var að spá hvar væru góð íslensk horde guild, jafnvel guild sem væri komið af SOTP. Bara á hvaða server sem er, er að lvla paladin og langar að spila í góðu guildi, transfer er alltaf hægt. kkthx Bætt við 23. september 2007 - 23:44 Og já það ætti helst að vera meira...

Hvaða lag er þetta? (5 álit)

í Músík almennt fyrir 16 árum, 8 mánuðum
Langar að vita hvaða lag eitt lag er, er búinn að vera að spá í því í einhverja mánuði svona on and off. Ég veit ekkert um það nema hvað ég pikkaði upp aðal stefið á gítar, ekki mjög flókið. Þetta er svolítið dimmt lag minnir mig, gæti verið synfónía að verki, ég er viss um að það hafa örugglega mörg bönd, t.d. metal bönd coverað þetta lag eða nýtt sér riffið. Riffið er svona E -5~~~-5-5-4-3-2-1~~~-1~~~-1~~~-1-1-2-3-4-5~~~-5~~~ Alltaf þetta aftur og aftur, glöggur tónlistarmaður ætti að geta...

Sálfræði (8 álit)

í Vísindi fyrir 16 árum, 8 mánuðum
Er enginn áhugi fyrir hendi um Sálfræði áhugamál? Hegðun, hugsun, persónuleikar, tilfinningar, alls konar hlutir tengdir heilanum og hvernig mismunandi hlutir í umhverfinu hafa áhrif á persónu, á góðan hátt eða slæman… til lengri tíma eða skemmri. Lífsreynslur og slíkt. Ég hefði allavega áhuga á að sjá svoleiðis.

Grímubúningspartý(Hugmyndir?) (53 álit)

í Tilveran fyrir 16 árum, 8 mánuðum
Okei er boðið í afmæli um helgina, þar sem er skylda að vera í grímubúning haha og ég hef bara enga reynslu af svoleiðis… þannig ég ætla að leyfa ykkur að spreita ykkur á þessu. Ekki hugmynd um hvað gæti virkað… :D Annars er ekkert þema, er hávaxinn og ljós- og stutthærður, svona fyrir additional info. Þannig t.d. lítill reiður mexíkani myndi kannski ekki alveg vera að virka. Einhverjar hugmyndir? :) Bætt við 16. ágúst 2007 - 01:09 Og já bæta við hérna… þar sem ég er svo metnaðarlaus hvað...

Kimono tónleikar (5 álit)

í Rokk fyrir 16 árum, 10 mánuðum
Ég var að heyra í útvarpinu um tónleikana einhvern tímann í náinni framtíð með Kimono, Jeff Who? og einhverjum fleirum…. heyrði þetta held ég á Bylgjunni. Einhver sem getur upplýst mig frekar um þessa tónleika?

Multieffekt fyrir gítar (7 álit)

í Hljóðfæri fyrir 16 árum, 10 mánuðum
Sæl öllsömul, var að spá í að kaupa mér svona magnara. http://www.roland.co.uk/guitar_room_catdet.asp?id=JC120 Á þessum eru rosaleg clean og chorus hljóð. Hins vegar er ekkert overdrive og distortion sem er í rauninni bara smá aukning á gain. Var að hugsa um að kaupa mér multieffekt og ætlaði að sjá hvort fólk hefði einhverja góða til að benda mér á? Eru þessir þarna frá Boss kannski bara málið eða? ME-50 og hvað þeir heita allir…

Line 6 - 75w gítarmagnari til sölu (0 álit)

í Hljóðfæri fyrir 16 árum, 10 mánuðum
Er hér með Line 6 - Spider II - 75w magnara til sölu. Hann er eiginlega slétt 2 ára gamall. Það er búið að spila svona temmilega mikið á hann en ekkert verið að nauðga honum. Hann er mjög vel farinn og bara almennt séð í mjög góðu ástandi. Ég keypti hann hér áður fyrr á 45 þúsund, nú er hann á 39.900 þúsund í Tónastöðinni eftir að Spider III kom. Sem mér sýnist reyndar vera nákvæmlega sama dæmið nema með fleiri forstillingum. Þessi gítarmagnari er í raun frábær miðað við peninginn sem hann...

Line 6 - Spider II - 75w (8 álit)

í Hljóðfæri fyrir 16 árum, 10 mánuðum
Er að pæla í að selja magnarann minn, sem er semsagt Spider II - 75w dæmi. Hvað haldiði að maður fái fyrir svona grip, keypti þetta á 40 þúsund í Tónastöðinni fyrir um 1-2 árum. Mjög vel farinn. Held hann sé á um 35 þúsund núna nýr.

Myspace tónlist (2 álit)

í Músík almennt fyrir 16 árum, 11 mánuðum
Langaði að spyrja ykkur, hvernig set ég lög á Myspace síðuna. T.d. eftir mig. Þarf maður að vera skráður sem musician eða eitthvað þannig. Finn þetta nefnilega ekki og þetta var það eina sem mig langaði að prófa þarna. Veit einhver hvernig þetta virkar?

Arctic Death Ship (5 álit)

í Rokk fyrir 17 árum, 1 mánuði
Þetta er jú nýrri diskurinn frá bandinu Kimono og ég var að spá hvort einhver hefði hlustað af viti á hann. Á Mineur Agressif og mér finnst diskurinn ekkert rosalegur, lögin er flest góð samt en fíla þau bara meir live. Einhver sem hefur tjékkað á þessum disk og vill væra svo sætur í sér að segja mér hvernig hann er. Kannski bera hann saman við hinn diskinn.

Skrítið gítarspil? (5 álit)

í Hljóðfæri fyrir 17 árum, 1 mánuði
Langar að fræðast um svoldið sem ég sá einu sinni á netinu, man ekkert hvað það hét samt. Það var semsagt einhver sem hélt á kassagítar og sat í stól. Hann var með gítarinn í kjöltunni nema hvað að hann snéri upp, þ.e. gatið snéri beint upp. Svo notaði hann vinstri hendina á fretboardið og hægri til að slá svona ofan á strengina. Það komu helvíti flott hljóð úr þessu ég mig langar alveg þvílíkt að finna þetta aftur eða fræðast um þetta. Man einhver hvar þetta var eða hvað þessi tækni heitir?

Pickuppar í post rock / indí tónlist (7 álit)

í Hljóðfæri fyrir 17 árum, 1 mánuði
Ég keypti mér Les Paul fyrir 2-3 árum og eru einhvern veginn pickupar í honum, bara þessir venjulegu sem koma með… humbuckers eitthvað. Man ekki alveg nákvæmlega hvað þeir heita. Langaði að spyrja, segjum að ég myndi taka mér fyrir hendur að spila t.d. í hljómsveit sem væri að spila svona post rock tónlist, Mogwai, Explosions in the Sky og jafnvel svona smá Sigur Rós. Þung tónlist og mikið lagt út á svona mjúka tóna. Væru þá einhverjir sérstakir pickupar sem þið mynduð halda að væru betri en...

Þverflauta á ensku? (10 álit)

í Hljóðfæri fyrir 17 árum, 1 mánuði
Já titillinn segir það… hvað er orðið yfir venjulega þverflautu á ensku?

Næsti content patch (5 álit)

í Blizzard leikir fyrir 17 árum, 2 mánuðum
Nei ég hef engar upplýsingar um hann. Var bara að spá hvort að einhver vissi hvenær við mættum búast við næsta content patchi. Þ.e. einhverjum talent changes eða bara eitthvað meira inn í leikinn. Maður hefur nú reyndar alveg nóg að gera í BC, bara forvitni. =)

Fótboltamynd? (2 álit)

í Kvikmyndir fyrir 17 árum, 3 mánuðum
Var að reyna að finna eina mynd sem ég man eftir, grínmynd um fótboltaþjálfara sem er bara algjörlega no good. Mig minnir að hún sé alveg drepfyndin og langaði til að nálgast hana aftur. Man hún heitir eitthvað durka durka football manager. Minnir að það komi nafnið á þjálfaranum og svo football manager. Bætt við 2. febrúar 2007 - 23:46 Ah ég var að finna hana. Mike Bassett: England Manager http://www.imdb.com/title/tt0282744/

2h hægt Warrior arms vopn - lvl 61-63 (5 álit)

í Blizzard leikir fyrir 17 árum, 3 mánuðum
Já var að spá í hvort einhver vissi um gott 2h vopn sem hægt er að fá úr questum eða instöncum(þá HC eða Coilfang helst) eða bara einhver staðar(samt ekki world drop). Vantar eitthvað gott vopn, ég er búinn að vera að sjá allt of marga með vopn upp á 70-80 dps og einhverja bónus statta. Er með Halberd of Smiting sem er reyndar fínt vopn, með chance on hit dauðans en er orðinn smá þreyttur á því. Geif eitthvað nýtt plx
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok