Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

SpaceRat
SpaceRat Notandi frá fornöld 38 ára karlmaður
842 stig
Kíkið endilega á síðuna mína www.folk.is/nixey

a song about you (2 álit)

í Ljóð fyrir 12 árum, 5 mánuðum
If I would make a song, a song about you Would I sing about your things? or things about you? or would I sing about the things that you do? Would the song involve your looks? or the way I look at you? Would the song involve me? or something we’ll be? would the song be perfect or the truth? Would the song involve your friends and your family? all the things you know? or all the things you need? would it make you feel good or freed? So if I would make a song a song about you I wouldn’t know...

VAKNA!!! (9 álit)

í Smásögur fyrir 17 árum, 8 mánuðum
Ég er í yndislegum heimi, allt er svo fallegt og fuglarnir syngja svo dásamlega. Veröldin gæti vart verið betri. Ef þetta er draumur, þá vil ég aldrei vakna! „VAKNA!!!“ Kallar einhver en ég sný bara hausnum ofan í koddan „VAKNA!!!“ Endurtekur röddin sig en skilaboðin komast bara ekki til skila. Ég hjúfra mig inn í sængina og held fast í draumalandið. „VAKNA!!!“ Þriðja hanagal! Ég streitist á móti nýjum degi sem vill endilega brjóta svefninn. Það er rifið af mér dýrmæt sængin og kuldinn...

Smávegis um frelsið (0 álit)

í Ljóð fyrir 17 árum, 10 mánuðum
Farinn úr takt Farinn í frelsið Farinn úr bundnu máli Hættur að yrkja rímur Farinn að tala Farinn að trúa Farinn í frjálsa ræðu Hvenær fékk frelsið reglur?

Fimm Frábærir Fingur (2 álit)

í Smásögur fyrir 17 árum, 10 mánuðum
Lilliputti hvílir á axlarbrúninni, baugfingur á öxlinni sjálfri, langatöng milli axlar og háls, vísifingur á hálskantinum og þumallinn loks á herðablaðinu. Vinur minn, hann stendur fyrir framan mig og ég held í öxlina á honum. Ég er bara að fara að spjalla við hann. „Jói, hvar varstu í gær?“ spyr ég „Æji, ég var þreyttur, sofnaði um 11!“ „allt í læ mar, djömmuðum bara til 2, pöbbinn var slappur.“ „að sjálfsögðu, það vantaði mig“ segir Jói og brosir. Ég gef honum five og ég finn mína fimm...

Botnfallinn (4 álit)

í Ljóð fyrir 18 árum
Einn inni í herbergi dimmt, þungt loft and-rúms-loft Ég gæti hengt upp snöru eða hníf á kaf út á haf bjartur legsteinn

Hugmynd um hefndina (5 álit)

í Ljóð fyrir 18 árum, 2 mánuðum
Guð sem er bróðir Satans send’ann í vítis vist. Enginn getur annan hatað án þess að elsk’ann fyrst! Sem ungir strákar þeir léku sér í Edens garð, að sjá sælu Adams og Evu stríða Satan þeim bara varð. Sem snákur hann þeim sagði: „Skilningseplið er málið! án þess drukknið þið í vatni og hlaupið beint í bálið.“ Af heimsku Eva beit í eplið og hæddist svo af guði, sitja þau nú í sæluvímu með sitt hvort grammið af stuði Í dag stefnir allt í eyði allt er það Satans sök menn senda menn til vítis með...

Krafturinn (8 álit)

í Smásögur fyrir 18 árum, 3 mánuðum
Eins og tár það blæðir úr fingrinum. Ég horfi á dropann falla ofan í vaskinn. Á glansandi gráum hnífnum í hendi mér er fögur rönd af rauðu fallegu blóði. Sjá hvað þetta er hreint, tært, tilfinningaþrungið. Það er eins og fingurinn hafi sál, hann hefur verið særður og grætur nú blóði. Ég sný hendinni við svo að blóðið fylli upp í sárið og stoppi blæðinguna. Ég lyfti síðan hendinni að andlitinu og sleiki blóðugan fingurinn. Blóð er sérstakt á bragðið. Það gefur manni furðulegan kraft, kraft...

Vetrarprinsessan (5 álit)

í Smásögur fyrir 18 árum, 4 mánuðum
Litlar hvítar flyksurnar dansa í vindinum. Það er hreint ótrúlegt hvernig svona köldum hlut hefur verið fyllt lífi. Þegar snjórinn safnast svo saman verður það eins og dúnmjúk sæng. Ég valhoppa í snjónum eins og ég sé á skýi og gleymi alveg hversu kalt er úti. Ég tek snúninginn og finn kalda hnoðrana tylla sér á heitu andliti mínu. Bílarnir taka snúning eins og skautadrottning og kelling með innkaupoka flýgur á hausinn eins og teiknimyndafígúra. Ég finn vindinn blása undir kjólinn minn og...

Draugar (2 álit)

í Ljóð fyrir 18 árum, 5 mánuðum
Þau sitja hliðina á hvoru öðru og haga sér eins og ekkert hafi gerst eins og þau hafi aldrei hitt hvort annað og hafi aldrei kysst Þau stara stjörf á skjáinn og þora ekki að líta til hliðar þau eru ains og draugar sem þau horfa bara í gegn En þau hlusta og þau heyra hvað hitt hefur að segja og þau rifja upp og muna hví þau kysstust þetta kvöld

Ég man (1 álit)

í Ljóð fyrir 18 árum, 5 mánuðum
Ég man þá tíð að ég hlustaði á söng fuglana sem voru ekki til sem gerðu sér hreiður í trénu sem var ekki þar og horfðu glaðir til sólarinnar sem ekki skein. Ég man að ég horfði út um gluggan og horfði á mann týna flöskur og fann fyrir þeirri undralega ánægju þegar hann fékk örlitla ölmusu fyrir verkið og ég fylltist hlýju þegar hann tók upp flöskuna mína, þvílíkt góðverk sem ég vann. Ég man þegar stelpurnar lýstu af fegurð eins og fallandi foss í fyrstu birtu dagsins og þegar þær hlógu að...

In the Fight of Life, no one will Survive (0 álit)

í Ljóð fyrir 18 árum, 6 mánuðum
Keep on punching, keep on kicking and finally you'll get the treasure keep on lying, keep on cheating and you'll feel the pleasure But you can never end on top 'cause some day you'll be beaten up and when you face the earth you'll learn what you're worth but life goes on, you can never stop It's drawing closer to the night and soon you'll end you're fight in the fight of life no one will survive

Ef ég gæti sofið aðeins lengur (5 álit)

í Ljóð fyrir 18 árum, 7 mánuðum
Ef ég gæti sofið aðeins lengur og slefað meir'í lakið. Væri ég glaður lítill drengur sem enginn gæti vakið, myndi þá ung og fögur dama dansa í draumaheimi, með brosi blíðu myndi lama hjarta mitt er ég dreymi. En líður hún af vegi í hvert sinn sem ég vakna og með hverjum vakanda degi ég hennar sárt sakna.

24 tímar í Grindavík (6 álit)

í Smásögur fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Ég vakna um 7 á föstudagsmorgni og fer í heita sturtu til að vekja mig að einhverju leyti, fer svo fram og drulla mér í drullugallann. Ég fæ mér svo morgunverð af einföldustu gerð því að ég er að flýta mér, vinnan kallar, bíllinn startar. Ég þarf ekkert að keyra í vinnuna, það er svona korters labb í vinnuna, en hér keyra allir í vinnuna, 10 mínútur í svefn í viðbót, það er í lagi. Allir eru að fara að vinna, fiskivinna, fiskifýla umlykur hvern íbúa á fætur öðrum. Hér kemur öll vinna fiski...

Verum ekkert bara vinir (4 álit)

í Smásögur fyrir 18 árum, 11 mánuðum
„Sjáðu hvað hún er flott!“ „Já þessi brjóst, geggjuð“ „Þessar buxur fitta líka svo vel við rassinn á henni, hún ætti að vera í auglýsingu fyrir Diesel“ Strákarnir, bekkjarfélagar mínir dást að fegurð bestu vinkonu minnar og hreykja sér af því hvað augu þeirra birtu heilanum þeirra, en þeir gera sér enga grein fyrir því að mér stendur ekki á sama hvað þeir segja. Mér líður ekki beint vel við þessa fyrirlitningu á Söru, vinkonu minni síðan ég veit ekki hvenær, síðan alltaf held ég, síðan ég...

Skilaboð til geðveilaðri vinkonu minnar (5 álit)

í Ljóð fyrir 19 árum
Viltu hitta mig í tungsljósi kannski á grænni grein viltu hitta mig í viskíglasi og vertu ekki sein vínrauð í fasi verðuru aldrei sain með miklu máttarljósi lækna ég þín mein

Drama (3 álit)

í Ljóð fyrir 19 árum, 1 mánuði
Tilfinningaþrungið þunglyndi með ástarkryddi og afbrýðisemi. Sápa sem hreinsar burtu ánægju og vellíðan einfaldleikans. Ópera með óstyrkum hjartslætti sem mann langar helst til að þagga niðr'í fyrir fullt og allt. Greddan treður mann um tær og maður gengur of langt, skammast sín, gleymir að í þessu lífi á maður ekkert út af fyrir sig, maður verður að deila í a.m.k. 4 eða jafnvel 5. Bónerinn bræðir sundur sápulöðurinn og krumpast saman í hlæilegan hundakúk. Hárin vaxa og maður hættir að gera...

robotic workout (3 álit)

í Ljóð fyrir 19 árum, 2 mánuðum
Milljónir manna á hlaupabretti! Mismunandi stillingar: hægt og hratt; hæðir, lægðir og sléttur, púlsmælir og orkusjeik. Gott veður úti og milljónir manna á hlaupabretti!

Búðarsendillinn (4 álit)

í Smásögur fyrir 19 árum, 4 mánuðum
Mikið er falleg mjöll yfir öllu, glitrandi snjórinn hylur alveg gráar göturnar sem endurspegla tilbreytingarlítið líf okkar sem eru full af hugsunarlausum holum. En fönnin fyllir alveg upp í götin í götunni og kemur grunlausum ökumanni í hann krappan, hann þeytist svo í hálkunni og snýst í nokkra hringi og endar svo á saklausum ljósastaur, gerir í hann stóra dæld og slekkur ljósið. Lífið er yndislegt, svona út um gluggan. Heimurinn kvelst meðan ég lifi hér, óskaðanlegur, í blokkaríbúð á...

Um horfna stelpu (1 álit)

í Ljóð fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Höfuð mitt er troðið af trú Á að ég eigi eftir að hitta þig aftur og þá ég mun drepa þig með tungu minni og draga inn í heiminn minn þar sem þú verður endurlífguð sem gyðja þráar og eftirvæntinga

Komdu að versla hjá okkur! (4 álit)

í Ljóð fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Bónus, Hagkaup og Húsgagnahöllin halda upp á happaníu. Bölvuð svínin vaða um völlinn, versla í innkaupakerrustíu. Tómatkraftur á tuttuguogníu, tilboðsverð á barnakerrum. Kannski viltu kaupa þér greipaldinsíu og kvenmannsnærföt handa herrum Búðirnar eru fullar af ódýru dóti, draslið allt “made in China” Þó að þú ákæruvaldi hótir þá muntu málinu tapa væna. Því við erum almáttug allrahandasala; appelsínur, karrý og sokkur og klístrað kók sem kverkarnar svala, komdu að versla hjá okkur!

Takmörk frelsisins (2 álit)

í Smásögur fyrir 19 árum, 6 mánuðum
“Frelsið er yndislegt,” segir lagið, sem er að sjálfsögðu satt. Frelsið er svarið, þegar ég er frjáls þá er ég til í allt og “ég geri það sem ég vil.” enginn skal stoppa mig. En það er einmitt málið, ég er alltaf stoppaður, frelsið er ekki endalaust, það er frekar takmarkað. Frelsið endar alltaf á því að einhver misskilur mig og ég verð fangi sektarkenndar. “Skyldi maður verða leiður á því til lengdar að vera til?” Ekki ég að minnsta kosti, ég fýla það að vera frjáls, frelsið er mér mjög...

Takmörk frelsisins (2 álit)

í Smásögur fyrir 19 árum, 6 mánuðum
“Frelsið er yndislegt,” segir lagið, sem er að sjálfsögðu satt. Frelsið er svarið, þegar ég er frjáls þá er ég til í allt og “ég geri það sem ég vil.” enginn skal stoppa mig. En það er einmitt málið, ég er alltaf stoppaður, frelsið er ekki endalaust, það er frekar takmarkað. Frelsið endar alltaf á því að einhver misskilur mig og ég verð fangi sektarkenndar. “Skyldi maður verða leiður á því til lengdar að vera til?” Ekki ég að minnsta kosti, ég fýla það að vera frjáls, frelsið er mér mjög...

what I am and what I was (0 álit)

í Ljóð fyrir 19 árum, 6 mánuðum
I don't feel like sleeping, I feel more like thinking about what I've become to think so little, about so few things that ar so useless and overappreciated. I used to think so much, about so many things that people I hate don't like me for thinking about. I used to like thinking so much, now I hate thinking so little. I used to be so awaken, enlightened and sleeping was great. I dreamt a lot of good, inspiring dreams. Now I'm so sleepy and tired, I get so much sleep that I can't dream. But...

stríðsdagar alla daga (2 álit)

í Ljóð fyrir 19 árum, 6 mánuðum
Í draumi ég lifi af stríð vakandi manna einn hlut ég veit og líð ég ei visku mína að menn hata allir hvern annan Undir hvílu mánans þyggi ég vopnahlé endurnærist bygg upp orku fyrir árás morgunfés Ég legg af stað rása um stríðsvöllinn kaffihúsakellingar þrasa byssukúlur í mína átt stefna högglin Skrifstofufjöldamorð starf mitt mig gilda skal gögn og skjöl hvarf þess alls ekki var mitt val yfirherra skipar: „tætast skrárnar skulu,“ ég lík verkefninu „rætast þá munu þínir draumar“ og ég leggst...

Myrkuraugun (0 álit)

í Ljóð fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Neonlýsandi augun Stara á þig í myrkrinu Elta augu þín Hvert sem þú lítur Þegar þú kveikir ljósið Feida þau út Og líta út eins og hálfgegnsæ drulla En þegar þú slekkur á ný Og allt er orðið niðadimmt Þá stara þau sem áður Ég ráðlegg þér bara Að horfa ekki í ljósið Þegar þú lokar augunum
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok