Sko, ég t.d. vildi prufa linux, fannst það heillandi á einn og annan hátt(Svo spillir ekki fyrir hærra framerate í RTCW :) svo að ég setti inn RH 7.0 sem ég fékk með PC World, að mig minnir. Ég gat upp á eigin spýtur ríkompælað kernelinn en ég var í vandræðum með eitthvað annað, man ekki hvað, en það tengdist því að mig vantaði módúl fyrir netkortið. Ég ákvað þá að senda inn kork á huga og fékk svar næstum samstundis, fínu lagi með það, ekkert nema hvetjandi að fá svona fína hjálp. En svo...