Jæja, eftir að hafa setið á mér um nokkurt skeið langar mig að láta örfá orð falla um alla þessa vitleysu í seinustu umferð ICSN deildarinnar heitinnar.

Það vill svo til að menn hafa verið að æsa sig yfir þessu fram og tilbaka án þess að hafa innsýn allra fram að þessu, og er miður að einnig hafa menn látið skapið hlaupa með sig. Og þegar upp er staðið þá græddi bara eitt klan, og það var GGRN.

1. ICSN var að hætta, og það vissu margir, þetta mál hafði ekkert með það að gera, og mér þykir miður að sumir vilji tengja þetta saman. Það vita þeir sem koma nálægt þessum deildum að Thursinn var að taka við.

2. Samkvæmt reglum ICSN var bara eitt klan sem braut af sér, og það var LOVE, með tilhæfulausum ásökunum á hendur evil, eða nánar á hendur spilara BLUE/BLIBB. Þessar ásakanir voru staðfestar af forsvarsmönnum icsn og komið til mín, þar sem ég svo svaraði því og sendi inn demo blue til varnar.

3. Það var á engan hátt ólöglegt að þessir spilarar spiluðu undir merkjum evil, enda búið að skrá þá löglega í ICSN með viku fyrirvara og samþykkja þá í evil.

4. Það er einungis ein ástæða fyrir því að dómurinn féll eins og hann féll, og það er vegna þess að þetta var auðvitað siðferðislega rangt af okkur sem spiluðum þennan leik, að nota önnur nick en venja var til: Black, Blue, Red, Yellow, Green. Hitt er annað að það er fordæmi fyrir því, önnur klön hafa gert þetta líka.

5. Mér persónulega finnst leiðinlegt að sumir skuli nota svona hlut til þess að ráðast ómaklega að spilurum og klönum og hvað þá að vera að búa til sögur um fall deildarinnar icsn vegna þessa, það er auðvitað út í hött.

6. Aðrir spilarar í þessum 3 klönum sem voru bendluð við þessi mál koma þessu ekkert við, t.d. vissi enginn annar í evil af þessu, og ég held að svo megi einnig segja um önnur klön.

Þannig að ég biðst afsökunnar fyrir mína hönd á siðferðisbresti mínum í þessu tilviki, en vil líka benda mönnum á að hætta að vitna í einhverjar reglur, ef þið skoðið reglurnar á www.icsn.is þá vitið þið að þetta var að öllu leyti löglegur gerningur, en að sjálfsögðu evil……

Semigod.