Taka skal fram að þetta er ekki beint gegn öllum meðlimum Sky, þeir taka það til sín sem eiga það.
_________________________________________________________________

Þannig er með málavexti að ég kom heim úr skólanum eftir leiðinlegan dag. Það fyrsta sem mig langaði að gera var að hlamma mér niður fyrir framan tölvuna og halda smá grillveislu í þessum snilldarleik, Wolfenstein, ég ræsti drusluna og opnaði Wolfenstein, opnaði console-ið og skrifaði “/connect skjalfti16.simnet.is”
Allt í lagi með það… En það fyrsta sem ég sé þegar ég kem inn á serverinn var “Sky - Tozzi(Eða eitthvað svoleiðis) Called a vote: Kick kleppari?” - “Vote succeded”
Og mér er kickað út vegna þess að Sky - Tozzi(Eða eitthvað…) og einhver annar í Sky voru að eiga sitt einkadúel á *public* server og “Eigna sér” í raun og veru serverinn, þetta var um hádegisbil og ég er nokkuð viss um að fleiri en ég hafa lent í þessu, ekki skrítið að þeir væru bara tveir inn á servernum ef þeir votekicka alltaf öllum út.
Mér finnst líka að clanið mætti taka á þessu, þetta kemur bara óorði á það.
Vildi bara koma þessu á framfæri, rosalega leiðinlegt þegar maður lendir í þessu!
<br><br>Virðingarfyllst, Kleppari

<i>-No one gives you power. Real power is something that you take. </i> Eve: The Second Genesis, CCP HF 2002.
Sölvi Páll Ásgeirsson