Ég myndi segja að Loner væri kominn með mjög góð tip. Hlusta á það. Það helsta sem ég myndi kannski bæta við það, er að hugsa fyrirfram hvað þú ætlar að skrifa, og hvert sagan á að leiða lesandann. Á hann til dæmis að finna til samúðar með söguhetjunni, eða á sagan að vekja hann til umhugsunar um eitthvað? Eða á hún bara að vera fyndin? Þ.e., hver er boðskapur sögunnar? Mér finnst svolítið mikilvægt að það sé tilgangur með því sem við skrifum, að við skrifum ekki bara eitthvað út í loftið....