Jæja þá er þessi ágæta hugmynd kominn af stað og ég er að hugsa um að byrja leikinn. Vonandi eruð þið ekki ósátt með þessa byrjun :P

—–

Það var kalt, þegar ég labbaði eftir götunni. Ég skildi þetta ekki allveg, af hverju ég var hér og af hverju á þessum tíma. Ég mintis þess þegar hún kom og bað mig um að sækja sig hingað. Ég reyndi að snúa mig út úr því með að segja að ég ætti ekki bíl en hún tók það ekki í mál og vildi fá mig fótgangandi.
Og nú var ég hér, skelf úr kulda og bíð. Af hverju, af hverju læt ég alltaf plata mig út í þetta, Ég bara skil þetta ekki. Ég var byrjaður að skugga í hverju horni, og svo þurfti að sjálfsögðu að byrja að rigna. En þarna kom hún loksins.