EMBÆTTI Þá er það komið á hreint,‘‘ sagði Arnór og rétti úr sér með klassísku ég-þarf-að-fara-núna fasi. ,,Endilega ekki,‘‘ sagði Trjángur. ,,Vegna komu svo margra nýliða höfum við áætlað fund í kvöld, með öllum leiðtogum Byltingarinnar, og það væri gott ef að þú gætir setið hann,‘‘ ,,Hví?‘‘ spurði Arnór. Trjángur klóraði sér í síðu skegginu. ,,Ég hef nú ekki mikinn áhuga á pólitík, en ég heyri ýmislegt, og Heriður sagðist vilja hafa þig á fundinum, hann segist hafa plön fyrir þig,‘‘ sagði...