Mig dreymdi að það kæmi heim til mín mexíkói/kani/kíni/perúski í fötunum hans Jay Lenom, svartan lepp yfir vinstra auga og með lítið sax og segði:
Hi, I'm an american soilder that went crazy in the Viatnamese war and now I need to kill somebody
En þá vippar litli bróðir minn fram risa saxi og ég hleyp í burtu skíthræddur og ætla að nota símann en hleyp í staðinn út og á erfitt með að hlaupa (gerist alltaf)og með perúskann á hælunum. Þá er ég allt í einu kominn í fötin hans Rincewind og er að hlaupa veginn að heimili mínu nema hvað hann er fullur af galdramönnum að labba í allar áttir. OG þegar mér loks tekst að hrista af mér æstan aðdáanda upp brotinn múrvegg er ég í einhverju stjörnu og þokuskreyttu draumalandi með Lilikoi (leit ekki út eins og Lilikoi en þið vitið hvernig þetta er í draumum), einhverri flottri skíthræddri stelpu, CondoM og ég held að þetta hafi verið SvartiSaudurinn. Við gengum í einhverri halarófu út um allt þar til við stoppuðum í einhverju herbergi og sérstaklega flotta stelpan féll næstum í yfirlið af hræðslu því að Lilikoi hafði falið einn af hvolpunum mínum fyrir aftan bakið sitt. Svo var ég kominn aftur heim en þá var allt í lagi með litla bróðir minn sem að ég hélt að kíninn hefði drepið.