Ég hef verið að hugsa um reglur og mynstur og búinn að taka eftir reglu sem gildir alls staðar: Það er ávallt einhver regla. Tökum sem dæmi kóðann ‘'7453579957’'. Það virðist ekki vera mikil regla í gangi þarna. En þá kemur kenningin inn í; reglan í kóðanum er þessi: fyrst 7, þá 4, næst 5, svo 3, aftur 5, einnig 7, bætum við 9, og aftur 9, líka 9, þriðja sinn 5 og að lokum 7. Þá er reglan þessi og þetta endurtekur sig ef við stækkum töluna....