Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Sansi
Sansi Notandi síðan fyrir 20 árum, 5 mánuðum 94 stig

Smásagnasamkeppni Málbjargar (6 álit)

í Smásögur fyrir 16 árum, 5 mánuðum
Var beðinn um að koma þessu á framfæri hér á Huga :) Málbjörg, félag um stam, efnir til smásagnasamkeppni. Málbjörg, félag um stam, efnir til smásagnasamkeppni. Öllum er heimil þátttaka og þurfa sögurnar að vera á íslensku og fjalla á einn eða annan hátt um stam. Sögurnar skulu ekki vera lengri en 2.500 orð. Dómnefnd skipuð fólki sem stamar og sérfræðingum í ritsmíðum velja bestu og athyglisverðustu sögurnar. Veitt verða peningaverðlaun fyrir bestu sögurnar. 50.000 kr. fyrir fyrsta sætið,...

Vantar myndir fyrir barnabók !! (19 álit)

í Myndlist fyrir 17 árum, 2 mánuðum
Vantar einhvern snjallan teiknara til að gera skissur fyrir barnabók sem ég ætla með til gamans til útgefanda. Hafa ævintýralegt útlit, teiknimyndalegt. Þarf ekkert að vera rosalega nákvæmt svona í fyrstu. endilega allir sem hafa áhuga prófa að senda mér… kaupsala@hotmail.com. Whats in it for you? Tvennt, 1. ég mun prenta bókina í prufueintaki og senda viðkomandi. Á hana þá myndskreytta að hluta. 2. Kannski ef myndirnar eru mjög góðar nota ég þær síðan áfram í útgáfu. 24x24cm ca. á stærð,...

Keppnin (8 álit)

í Grafísk hönnun fyrir 17 árum, 7 mánuðum
Nú líður að lokum keppninnar.. held það séu komnar fimm góðar tilögur :) En… vantar gott kort af suður-ameríku, til að láta fylgja með… einhver sem er góður að leita slíkt uppi, með nöfn svo ég geti fundið staðina og merkt in :) en jæja…. búið að vera frábær viðbrögð. Væri gaman að vera með aðra keppni fljótlega…

Háskaför um Suður Ameríku 1.hluti (11 álit)

í Smásögur fyrir 17 árum, 10 mánuðum
Inngangur: Leiðin til Suður Ameríku Þetta ferðabrölt hófst árið 2000. Þá þegar ég og félagi minn Guðmundur Þór fórum tveir um Austur Evrópu í þrjá mánuði með ekkert nema litlar skólatöskur í eftirdragi. Með fátt klæða til skiptanna og litla peninga keyptum við okkur Interrail miða og þvældumst um með lestum niður eftir álfu frá Tékklandi, Búlgaríu, Rúmeníu, Slóveníu og suður til Ítalíu og Grikklands. Þá þegar við vorum nær rændir aleigunni, gasaðir í lest til Póllands, þá þegar við sváfum...

Ósýnilegi Ég? (7 álit)

í Smásögur fyrir 18 árum, 6 mánuðum
Ekki veit ég af hvaða ástæðu það bar að höndum í fyrsta skipti né hvernig standi á því. Ég veit mest lítið af svörum við furðulegum spurningum. Ég var í göngu með þremur félögum upp Esjuna þegar ég skyndilega týndist þeim. Þeir leituðu um allt en allan tímann stóð ég beint fyrir framan nefið á þeim. Þegar vinirnir gáfust upp og ætluðu að hringja á hjálp birtist ég þeim aftur. Sumir eins og spurningamerki í framan, kengbognir og furðulegir. - Hvar varstu maður? Ég svaraði engu, leið hálf...

Svartar verur (10 álit)

í Smásögur fyrir 18 árum, 7 mánuðum
Ég hef lokað mig inni í líkamanum. Læst mig af í afskekktu eyðilandi hugans. Þar hjúfra ég mér saman einn í myrkrinu. Líkaminn sálarlaus er lokaður inni í litlu skjannahvítu herbergi. Þar er hann geymdur á víxl sitjandi eða liggjandi. Augun lífvana stara fram á það sem ég óttast mest. Martröð mína í eina tíð, veröld mína það sem eftir er. Ég er eins og lítill krakki aleinn í myrkrinu, skelf og titra í felum en þori ekki að gráta, eins sáran og ég vildi, af ótta við að það finni mig. Það...
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok