Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

The Who á tónleikaferðalag (9 álit)

í Gullöldin fyrir 18 árum, 4 mánuðum
http://www.mbl.is/mm/frettir/frett.html?nid=1176049 Er ekki málið að fá þá hingað til Íslands ?

Kona sem á enga að ? (22 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 4 mánuðum
http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/frett.html?nid=1175617 Vá ég hélt að svona gæti ekki gerst á Íslandi. Hún lá dauð heima hjá sér í 3 vikur án þess að nokkur vissi af því !

Jólagjafir (38 álit)

í Gullöldin fyrir 18 árum, 4 mánuðum
Jæja hvað fenguði síðan í jólagjöf ? * Þríhjóla golfkerra * Ljós * Skó * Buxur * Náttbuxur * Bindi * Málverk eftir Afa * The Simpsons sixth season * Trefil * Annan trefil * Sjampó og snyrtivörur * Tölvudagatal

Amazon damn it (18 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 4 mánuðum
Helvítis, ég pantaði á Þorláksmessu fullt af dóti á amazon.com og þar á meðal The Simpsons Sixth Season. Síðan fæ ég það í jólagjöf áðan ! Aldrei panta neitt af Amazon svona rétt fyrir jól, þú gætir fengið það í jólagjöf !

Kreditkort (4 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 4 mánuðum
Hmmm… Getur 17 ára ungur maður fengið kreditkort ?

Geisladiskamarkaðir (1 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 4 mánuðum
Eru einhverjir geisladiskamarkaðir í gangi í bænum núna ? Eins og er oft í Perlunni ..

George Michael (1 álit)

í Hugi fyrir 18 árum, 4 mánuðum
Hvað heitir aftur lagið með George Michael þar sem myndbandið gerist í einhverri stórborg þar sem löggan er á þyrlu að busta fólk við að gera það uppá húsþökum og eitthvað ?

mbl.is (17 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 5 mánuðum
Er mbl.is búnir að ráða skólakrakka til að skrifa fréttir í jólafríinu ? http://www.mbl.is/mm/frettir/frett.html?nid=1174443;rss=1

Gullaldarlagalisti (106 álit)

í Gullöldin fyrir 18 árum, 5 mánuðum
Góðan daginn Gullaldarhugarar Ég vil að þið svarið þessum korki með lista af öllum uppáhaldsgullaldarlögunum ykkar. Við ætlum að reyna koma þessari hugmynd í gang um að láta koma random gullaldarlög hérna á áhugamálinu þegar þið komið hingað, eins og með minningarkubbinn og staðreyndakubbinn, það kemur bara nafn á einhverju gullaldarlagi. Þannig, endilega póstið listanum ykkar yfir uppáhaldsgullaldarlögin ykkar og þau verða síðan sett inní kubbinn eftir yfirferð á öllum lögunum.

Fölsuð skilríki (35 álit)

í Deiglan fyrir 18 árum, 5 mánuðum
Góðann daginn Ég var að spá í einu. Vinur minn var böstaður í ríkinu í Kringlunni fyrir að vera með fölsuð skilríki og löggan kom og allt, og hún sagði honum meira segja að hann ætti yfir höfði sér allt að mánaðarfangelsi eða gríðarlega háar fjársektir. Þannig ég var að spá í einu, hvert fara 17 ára gamlir falsarar í fangelsi og hversu há sekt ætli þetta sé ? ;D

Gullaldartrivia enn og aftur (10 álit)

í Gullöldin fyrir 18 árum, 5 mánuðum
Afsakið korkaflóðið, en það er komið nýtt gullaldartrivia ! Endilega allir taka þátt og ekkert svindl takk ;)

Gullaldaratrivia2 (19 álit)

í Gullöldin fyrir 18 árum, 5 mánuðum
Er fólk að verða geim í nýtt gullaldartrivia ?

Jólagjafir (21 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 5 mánuðum
Hvað gefið þið margar jólagjafir í ár ?

Speedtouch 585 (35 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 5 mánuðum
Djöfull er þetta gallaður router ! Maður kemst eiginlega ekki á neinar síður, kemur alltaf upp að routerinn finni síðuna ekki eða eitthvað álíka kjaftæði. Kemst næstum ekki á neinar .tk síður og heldur ekki www.mxtabs.net ! Einhverjir aðrir speedtouch 585 notendur að lenda í þessu ?

Tungumál (5 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 5 mánuðum
Eruði ekki að grínast ? :) http://pic19.picturetrail.com/VOL1053/4186317/8757657/121217600.jpg

8.desember *hrollur* (57 álit)

í Gullöldin fyrir 18 árum, 5 mánuðum
Í dag eru 25 ár síðan John Lennon var skotinn af geðtrufluðum aðdáanda. 5 skotum var hleypt af en 4 af þeim fóru í bak og axlir John's. John lést í lögreglubíl á leiðinni á spítala. Ég ætlaði að koma með ítarlega grein um þetta í dag en greinaskrifin forfölluðust vegna próflesturs, hún verður að bíða betri tíma. ,,I'll probably be popped off by some loony". - John Lennon Np; John Lennon - Bless you

Hvaða diskur ? (37 álit)

í Gullöldin fyrir 18 árum, 5 mánuðum
Hvaða diskur er mest í spilun hjá ykkur þessa dagana ? Sgt. Peppers lonely hearts club band hjá mér.

*Pirr* (1 álit)

í Gullöldin fyrir 18 árum, 5 mánuðum
Helvítis klúbbar. Ætluðum á Rolling Stones í kaupmannahöfn í júní á næsta ári, en til að kaupa miða þarf maður að vera í einhverjum Rolling Stones klúbb á netinu sem kostar 100$ að ganga í. Ætluðum reyndar fyrst að fá miðana gegnum einn kall sem er í þessum klúbb, en það er eitthvað hámark hversu marga miða hver má kaupa. Varð bara að létta þessu af mér. *Rauður karl með rauða húð og gul augu og hvöss horn sitthvorumegin á hausnum*

Próf (39 álit)

í Gullöldin fyrir 18 árum, 5 mánuðum
Jæja, eru ekki flestir hérna í prófum núna, hvernig gengur ?

Ensk-Dönsk (9 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 5 mánuðum
Hvar get ég fengið ensk-dönsk þýðanda, þar sem ég get sett heilan texta í box og síðan þýtt yfir á dönsku ?

Stæ. spurning (17 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 5 mánuðum
Hvað merkir aftur s-ið ? Aldrei tekið eftir þessu áður í stærðfræðibókinni en þetta er á formúlublaðinu. Dæmi: Yfirborðsflatarmál keilu: Y = pí * r * s + r² * pí s ?

Jay Leno í gær (6 álit)

í Hugi fyrir 18 árum, 5 mánuðum
Hvað heitir lagið sem Queens of the stone age tóku ?

Fréttastöðin (46 álit)

í Gullöldin fyrir 18 árum, 5 mánuðum
Í fréttum er þetta helst: Gullaldartrivianu er lokið og sigraði colosuss það. Hann vildi ekki taka að sér að sjá um næsta trivia og er það því í umsjón stjórnenda næst. Það má þó ekki búast við nýju trivia strax. Nýr stjórnandi mætir bráðum til starfa. Ulvar var ráðinn sem stjórnandi en ekki er þó vitað hvenær hann mætir til vinnu. Ulvar er mest þekktur fyrir það að vera stjórnandi á rokk áhugamálinu, en þar fer hann hamförum. Nýr kubbur fer bráðum í vinnslu, en hann mun alfarið sjá um það...

Skrifin á þessu áhugamáli (15 álit)

í Sagnfræði fyrir 18 árum, 5 mánuðum
Góða kvöldið Mér finnst leitt að sjá hversu einhæf skrifin á þessari síðu eru oft. Meirihluti greinanna hérna eru um WWII, þetta eru jú allt glæsilegar greinar, en ég held að fólk sé alveg tilbúið í að fara lesa um eitthvað annað. Maður sér t.d. næstum ekkert skrifað hérna um Rómaveldið, Egyptaland til forna, Fönikkar, Grikkland til forna eða Súmera, þetta voru allt miklir stríðsmenn og ef mér skilst rétt á greinarskrifunum, þá eruði allir/allar miklir stríðsmenn. Verum nú öll dugleg í...

CanonScan 630Ui (4 álit)

í Windows fyrir 18 árum, 5 mánuðum
Góða kvöldið Ég var að grafa upp gamla skannann minn því mig langar að fara skanna myndir núna. En málið er að ég er búinn að týna diskunum sem fylgdu med skannanum. Ég er búinn að leita á netinu af driverum og ýmislegu fyrir þetta en ekkert virðist virka. Spurningarnar eru: Vitiði um driverar á netinu fyrir CanonScan FB 630Ui ? Þarf ég eitthvað sérstakt forrit til að geta skannað inn myndir ? Get ég notað photoshop til að skanna inn myndir ? Þakka fyrir !
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok