Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

ProV1
ProV1 Notandi frá fornöld 1.402 stig

980F myndin (4 álit)

í Golf fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Hvernig ertu að fíla Titleist 980F brautartréð bsk17? Ég var að lesa GolfWorld um daginn og þetta brautartré var talið eitt af þeim bestu í dag. Eins og ég sagði hérna fyrir skömmu þá fékk ég mér sjálfur eitt slíkt fyrr í sumar og fíla það í tætlur :) Eru einhverjir fleiri sem eiga svona brautartré eða önnur sem þeir fíla vel?

——————- make par, not war</i

Feluleikur (2 álit)

í Golf fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Mér finnst svo skrítið að nánast ekkert er fjallað um Norðurlandamótið á golf.is síðunni. Ætli það tengist því að flest ef ekki öll lið Íslands enduðu í síðasta sæti? Mér hef það stundum á tilfinningunni að GSÍ forðist slæmar fréttir…

——————- make par, not war</i

Westwood vinnur Dunhill Links Championship (1 álit)

í Golf fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Ég vona að einhverjir hafi haft tækifæri til þess að fylgjast með Dunhill mótinu, þetta var mjög skemmtilegt mót! Lee Westwood hélt forskotinu sem hann hafði fyrir síðasta hring en sigraði aðeins með naumindum á -21 undir pari, höggi á undan Ernie Els sem setti mikla pressu á Westwood og lék á 64 höggum. Það var þó ekki besti hringur dagsins, Englendingurinn Brian Davis lék á 62 höggum og setti nýtt vallarmet á Old Course! Þetta er annar sigur Lee Westwood á rúmum mánuði og hann er nú kominn...

Strákarnir okkar (3 álit)

í Golf fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Jæja, nú er fyrsti hringur búinn hjá Íslendingunum fjórum sem eru að reyna að komast í gegnum úrtökumótin fyrir European Tour. Sigurpáll og Björgvin léku vel og eru í 3. - 5. sæti á 70 höggum eða -2 undir pari. Ólafur Már og Birgir Leifur léku á fimm höggum meira og eru í 37. - 53. sæti. Allir spila þeir á Five Lakes vellinum í Englandi en samtals 600 manns taka þátt á fimm völlum (einnig er leikið í Þýskalandi og Frakklandi). Hverju spáið þið um framhaldið? 40 manns komast áfram í næsta...

Frábær hringur hjá Jacobsen (0 álit)

í Golf fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Nú fer fram Linde German Masters á European Tour. Eftir fyrsta hring er Fredrik Jacobsen í efsta sæti, hann lék ótrúlega vel á -12 undir pari eða 60 höggum. Slík skor eru mjög sjaldgæf, aðeins einn fugl í viðbót og þá hefði Freddie bæst í hóp örfárra sem leikið hafa undir 60 höggum í móti. Freddie fékk einn örn og tíu fugla. Hérna má sjá skortkort Freddie í dag: 60 högg

——————- make...

Toyota stigalistinn (5 álit)

í Golf fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Mér finnst það frekar slappt að ekki sé enn búið að birta uppfærðan Toyota stigalista. Reyndar hefur maður alltaf þurft að bíða lengi eftir uppfærðum lista en þar sem að síðasta mótið er búið hefði maður haldið að lokalistinn yrði klár um leið. Það er bara búið að tilkynna hve mörg stig efstu tvö sætin fengu… rosalega “professional” mótaröð! :)

——————- make par, not war</i

Ellefu högga sveifla (0 álit)

í Golf fyrir 20 árum, 8 mánuðum
Núna fer fram hið þekkta Trophée Lancôme mót í Frakklandi (European Tour). Skoskur kylfingur að nafni Murray URQUHART (fallegt nafn) spilaði illa í gær á 74 höggum og byrjaði illa í dag, fékk skolla á fyrstu holu. Viti menn, kallinn setti í gírinn og fékk 9 fugla á síðustu 17 holunum (þar af 5 fugla í röð) og endaði á -8 undir pari 63 slög. Nokkuð nettur! Gaman verður að fylgjast með næstu tveimur dögum hjá þessum :o) <a...

6. sigur Ernie Els (1 álit)

í Golf fyrir 20 árum, 8 mánuðum
Ernie Els tryggði sér í dag sinn fjórða sigur á árinu á European Tour þegar hann vann Omega European Masters með 6 höggum í Sviss. Hann byrjaði daginn tveimur höggum frá Eduardo Romero en lék stórkostlega á 65 höggum og sigraði á samtals -17 undir pari. Áður hafði hann unnið tvisvar á PGA Tour og er þetta því sjötti sigur hans á árinu. Enginn hefur unnið jafn mörg mót og því verður þetta að teljast ár Big Easy.

——————- make par, not war</i

Sveiflan hans Adam Scott (1 álit)

í Golf fyrir 20 árum, 8 mánuðum
Í greininni sem ég skrifaði um Adam Scott kom linkurinn einhvað brenglað út. Hérna er því linkurinn aftur: Sveiflan hans Adam Scott

——————- make par, not war</i

GolfDigest (4 álit)

í Golf fyrir 20 árum, 8 mánuðum
Hvað finnst ykkur um GolfDigest blaðið á íslensku… Er einhver áskrifandi að því?

——————- make par, not war</i

Rólegur Adam Scott! (0 álit)

í Golf fyrir 20 árum, 8 mánuðum
Nokkur pör, fimm fuglar og tveir ernir hjá Adam Scott á öðrum degi Deutche Bank Championship á PGA mótaröðinni bættu 24 klukkutíma gamalt vallarmet Justin Rose um eitt högg. Þetta var ótrúlegur hringur, 62 högg (-9 undir). Adam Scott og Justin Rose eru bestu vinir og því skondið að þeir skuli báðir hafa bætt vallarmet í sama mótinu. Kíkið á skorkortið: Skorkort Adam Scott

——————- make par, not war</i

Frábær endurkoma hjá Westwood (0 álit)

í Golf fyrir 20 árum, 8 mánuðum
Lee Westwood sigraði í dag mjög sterkt BMW International Open í Þýskalandi. Hann lék á 66 höggum síðasta daginn og sigraði með 3 höggum á -19 undir pari. Westwood sigraði á 7 mótum árið 2000 en hefur síðan þá fallið úr 4. sæti á heimslistanum í það 215. Sigurinn í dag var honum því mjög kærkominn, það sást best á tárunum sem streymdu niður kinnar hans eftir hringinn. Frábært hjá Lee Westwood!

——————- make par, not war</i

Clarke sigrar á NEC (0 álit)

í Golf fyrir 20 árum, 8 mánuðum
Norður Írinn Darren Clarke sigraði á NEC Invitational mótinu sem lauk í dag í Bandaríkjunum. Clarke vann með 4 höggum og fékk $1.050.000 USD í verðlaun. 1. D Clarke -12 2. J Kaye -8 3. D Love -7 4. C Riley -6 4. T Woods -6 Tiger Woods endaði jafn í 4. sæti eftir að hafa endað illa. Davis Love III endaði í 3. sæti og eykur þar með forskot sitt á peningalista PGA Tour.

——————- make par, not war</i

Tiger vs Ernie (0 álit)

í Golf fyrir 20 árum, 8 mánuðum
Tiger Woods og Ernie Els eru saman í holli í dag á 3. degi NEC Invitational mótsins á Firestone vellinum. Það væri gaman að fylgjast með þessu einvígi enda leikmenn nr. 1 og 2 á heimslistanum að berjast. Tiger Woods verður að teljast líklegri. Hann hefur alltaf kunnað vel við sig á Firestone vellinum og hefur 18 sinnum af síðustu 23 hringjum spilað undir 70 höggum.

——————- make par, not war</i

EM einstaklinga í Skotlandi (0 álit)

í Golf fyrir 20 árum, 8 mánuðum
Sigurpáll G. Sveinsson lék frábærlega í dag og er í 11. - 18. sæti á EM einstaklinga í Skotlandi. Svona hafa skorin verið fyrstu tvo hringina: Guðmundir Ingvi Einarsson 76-82 Sigurpáll G. Sveinsson 74-71 Birgir M. Vigfússon 78-77 Heiðar Davíð Bragason 81-81 Eftir 3 hringi komast 70 manns áfram í lokahringinn. Heimasíða mótsins

——————- make par, not war</i

NEC Invitational (1 álit)

í Golf fyrir 20 árum, 8 mánuðum
Í dag var fyrsti dagur NEC Invitational mótsins. Þetta er stórskemmtilegt mót með flestum bestu kylfingum heims um þessar mundir því þetta er boðsmót þar sem 80 af efstu kylfingum heimslistans er boðið og þeim sem hafa unnið mót víðs vegar um heiminn á þessu ári. 85 eru skráðir til leiks og er engin niðurskurður eftir tvo hringi. Hart verður barist því miklir peningar eru í boði og auðvelt að hoppa upp um sæti á peningalistunum. Núna eru flestir komnir inn og það er ljóst hverjir eru á...

Var að pæla... (0 álit)

í Golf fyrir 20 árum, 8 mánuðum
… á hvernig lúxus samning er Tiger Woods við Nike? Flestir framleiðendur gera þá kröfu að 12 kylfur séu frá þeim. Tiger er með 5-6 Titleist kylfur í pokanum (fer eftir hvort hann notar 2 eða 3 Vokey wedga). Í dag er hann bara með járnasettið frá Nike. Hann er með Titleist: 975D driver, PT brautartré, Vokey wedga og Scotty Cameron pútter. Það mætti halda að hann væri enn á samning við Titleist :) Ég bíð bara eftir að hann skipti í ProV1 aftur!

——————- make par, not war</i

Mótsgjöld (1 álit)

í Golf fyrir 20 árum, 8 mánuðum
Góð umræða um “forgjafarsvindlara” er komin í gang. Mig langar líka að ræða um annað mál, þ.e. mótsgjöldin. Hvað finnst ykkur um mótsgjöldin eins og þau hafa þróast sl. 2-3 ár. Ég borgaði 3.500 kr. fyrir opið 18 holu golfmót síðustu helgi. Persónulega finnst mér það full mikið… Stundum kemst maður ekki út að spila um helgar nema að taka þátt í mótum.

——————- make par, not war</i

First day (1 álit)

í Golf fyrir 20 árum, 8 mánuðum
Aðeins ellefu kylfinar eru undir pari eftir fyrsta hring PGA Championship. Phil Mickelson og Rod Pampling eru jafnir á -4 undir pari. Mike Weir er -2 undir og Vijay Singh er -1 undir. Ernie Els er +1 yfir (fékk 15 pör). Tiger Woods og Davis Love III eru +4 yfir og Colin Montgomerie lék á 82 í gær eða +12 yfir!

——————- make par, not war</i

PGA Championship (6 álit)

í Golf fyrir 20 árum, 9 mánuðum
Síðasta risamótið eða síðasti “majorinn” hefst í kvöld í Bandaríkjunum. Þetta er loka séns fyrir Tiger Woods að vinna risatitil í ár og mun hann gera allt til að vinna því hann hefur unnið slíkan titil 5 ár í röð! Til að auka líkurnar á því hefur hann ákveðið að nota Titleist 975D driverinn sinn því hann segist ekki geta unnið mótið nema hann hitti brautirnar. Af þessum 10 kylfingum, raðið niður þremur sigurstranglegustu að ykkar mati: Kenny Perry Mike Weir Tiger Woods Padraig Harrington...

Maggi Lár í 2. sæti (3 álit)

í Golf fyrir 20 árum, 9 mánuðum
Eftir að Magnús datt út í fyrstu umferð British Boys tók hann þátt ásamt hinum 127 sem einnig duttu út í fyrstu umferð í aukamóti sem haldið var á Wallasey golfvellinum. Magnús stóð mjög vel, spilaði einn undir pari eða á 70 höggum og endaði í öðru sæti. Frábær árangur hjá Magnúsi eftir vonbrygðin við að detta út í fyrstu umferð aðal keppninnar.

——————- make par, not war</i

Birgir Leifur með vallarmet (1 álit)

í Golf fyrir 20 árum, 9 mánuðum
Birgir Leifur setti vallarmet í dag í Grafarholti. Hann spilaði í 67 höggum sem er -4 undir. Þetta verður að teljast gott því það var frekar slæmt veður í dag.

——————- make par, not war</i

RainGrip hanskar (3 álit)

í Golf fyrir 20 árum, 9 mánuðum
Þvílík snilld! Ég notaði svona hanska í rigningunni í dag og hef aldrei fílað mig betur ;o)

——————- make par, not war</i

Háværir driverar (5 álit)

í Golf fyrir 20 árum, 9 mánuðum
Ég þoli ekki drivera sem heyrist hátt í þegar maður hittir boltann. Þannig eru þeir því miður flestir í dag. Í dag fann ég einn sem ekkert heyrist í en það er nýji Ping driverinn Si3. Ég fékk að prófa einn með Blue skafti og það er geðveik kylfa! Hefur einhver prófað þessa kylfu? Hvaða gráðu er best að taka?

——————- make par, not war</i

Jim Furyk sigrar Buick Open (0 álit)

í Golf fyrir 20 árum, 9 mánuðum
Jim Furyk sem vann US Open fyrr í ár vann í dag Buick Open í Bandaríkjunum á -21 undir pari. Tiger Woods var í 2. sæti ásamt þremur öðrum á -19 undir pari.

——————- make par, not war</i
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok