Ernie Els tryggði sér í dag sinn fjórða sigur á árinu á European Tour þegar hann vann Omega European Masters með 6 höggum í Sviss.

Hann byrjaði daginn tveimur höggum frá Eduardo Romero en lék stórkostlega á 65 höggum og sigraði á samtals -17 undir pari.

Áður hafði hann unnið tvisvar á PGA Tour og er þetta því sjötti sigur hans á árinu. Enginn hefur unnið jafn mörg mót og því verður þetta að teljast ár Big Easy.<br><br>——————-
<i>make par, not war</i
——————-