Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

ProV1
ProV1 Notandi frá fornöld 1.402 stig

Adam Scott sigrar á ný (0 álit)

í Golf fyrir 20 árum, 9 mánuðum
Hinn 23 ára ástralski kylfingur Adam Scott sigraði í dag á Scandic Carlsberg Scandinavian Masters mótinu. Þetta er fjórði sigur hans á European Tour frá 2001 og sá annar í ár. Adam Scott er mjög skemmtilegur kylfingur, sveiflunni hans hefur verið líkt við Tiger Woods og þykir hann mikið efni.

——————- make par, not war</i

Pútterinn hans Vijay Singh (1 álit)

í Golf fyrir 20 árum, 9 mánuðum
Veit einhver hvaða týpu af Titleist Scotty Cameron Vijay Singh notaði í British Open?

——————- make par, not war</i

Ernie Els í stuði (2 álit)

í Golf fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Ernie Els verður að teljast líklegur á British Open sem hefst næsta fimmtudag. Hann leiðir núna Scottish Open á -11 undir pari eftir 2 hringi. Els er búinn að spila mjög vel, fengið 12 fugla, 1 skolla og rest par. Hverjir haldið þið að muni veita Els keppni á British Open?

——————- make par, not war</i

Myndin (1 álit)

í Golf fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Plís skiptið um mynd. Ég er kominn með ógeð á þessari PAINTBRUSH mynd sem er búin að hanga hérna inni í ca. 2 vikur!

——————- make par, not war</i

Hjátrúafullir golfarar (8 álit)

í Golf fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Mig langar að spyrja ykkur að tvennu: Hvernig merkið þið boltana ykkar? Eruð þið hjátrúafullir út á velli? Ég merki Titleist boltana mína alltaf eins, með tveimur punktum sitt hvoru megin við tölustafina. Ég verð að viðurkenna að ég er mjög hjátrúafullur. Ég byrja alltaf á því að hita upp með SW, fer svo í 9 járn og hita bara upp með járnum sem hafa oddatölu. Ég nota bara brotin tí þegar ég slæ teighögg á par 3 holum. Ég nota bara Titleist #1 og #3 og ég nota bara hvít tí. Til eru...

Bjöggi (1 álit)

í Golf fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Finnst ykkur Bjöggi Sigurbergs ekki vera að spila vel þessa dagana?

——————- make par, not war</i

Pokinn hjá Jim Furyk á US Open (3 álit)

í Golf fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Þetta var Furyk með í pokanum þegar hann vann sinn fyrsta risatitil nú nýlega á US Open: Driver: Titleist 983K 9.5° 3 wood: TaylorMade 200 Tour 5 wood: Orlimar TriMetal 3 iron: Ben Hogan Forged Apex Plus cavity Irons (5-PW): Ben Hogan Forged Apex Plus cavity Wedges: Titleist Vokey Design 50° & 60° Putter: Ben Hogan by Bettinardi “Big Ben”

——————- make par, not war</i

Furyk á 3 högg (0 álit)

í Golf fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Það verður gaman að horfa á US Open í kvöld. Mér finnst Jim Furyk eiga skilið að vinna, hann hefur átt frábært ár og gott “comeback” eftir mjög slakt gengi síðustu tvö árin. Furyk er að leika langbest. Hann er ótrúlega nákvæmur með dræverinum sínum. Mér sýnist hann vera að nota nýja Titleist K dræverinn og Harrison skaft. Svo virkar þessi skrítni pútter vel fyrir hann. Go Furyk!

——————- make par, not war</i

Els betri en Woods (1 álit)

í Golf fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Ernie Els spilaði á -1 undir í dag á meðan að Tiger Woods lék á parinu. Els fékk 17 pör og einn fugl (gaman). Rickie Barnes áhugamaðurinn sem var með þeim í holli endaði +1 yfir sem er fínt hjá honum. Þetta hljóta að vera tíðindi því Tiger Woods leikur nánast alltaf betur en meðspilararnir sínir.

——————- make par, not war</i

Bjöggi Sigurbergs heitur þessa dagana (3 álit)

í Golf fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Bjöggi Sig. spilaði vel í dag í Portúgal, 67 högg eða -4 undir. Þetta var fyrsti hringurinn í móti á Europro mótaröðinni sem hann og Óli Már leika á. Óli Már er líka með í mótinu. Gaman að sjá að Bjöggi er að spila vel þessa dagana, virðist vera í hörkuformi. Mæli með að þið kíkjið á síðuna hans, það er nýbúið að gera hana enn flottari: Heimasíða Björgvins Sigurbergssonar

——————- make par, not war</i

David Duval með kraftaverk (3 álit)

í Golf fyrir 20 árum, 11 mánuðum
David Duval komst loksins í gegnum niðurskurð á PGA mótaröðinni. Duval hefur ekki náð þessum áfanga í allt ár og er í bullandi hættu á að missa kortið sitt! Duval komst í gegnum niðurskurðin á FBR Capital Open sem var að klárast í dag. 74-62-73-74 Ótrúlegur hringur hjá Duval á degi tvö, 9 fuglar og 9 pör. Hvaðan sá hringur kom veit enginn, ekki einu sinni Duval :o)

——————- make par, not war</i

Tiger mættur aftur! (2 álit)

í Golf fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Næstu helgi fer fram Memorial mótið á US PGA. Leikið er á Muirfield Village vellinum í Ohio. Aðalfréttin er sú að Tiger Woods mætir aftur og mun spila með í fyrsta sinn síðan á Masters! Aðeins Phil Mickelson og David Toms úr hópi efstu 10 á heimslistanum taka ekki þátt í mótinu. Gaman verður að fylgjast með þeim bestu berjast á ný, sérstaklega Ernie Els og Tiger Woods. En hvað er málið með Tiger Woods? Þetta er aðeins sjöunda mótið hans í ár af 22. Af hverju er hann að taka þátt í svona fáum mótum?

Birgir Leifur átti gott mót (0 álit)

í Golf fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Birgir Leifur átti gott mót á Challenge Tour þessa helgi. Spilað var í Hollandi. Birgir endaði jafn í 16. sæti á -3 undir pari. Hann lék hringina á 69-78-68-70 sem sýni að hann er í góðu formi.

Toms leiðir fyrir síðasta hring (1 álit)

í Golf fyrir 21 árum
David Toms á heil 5 högg á næstu menn á “Wachovia Championship” sem fer fram í Charlotte. Toms lék á -6 undir í gær (66 högg) og var í banastuði (chippaði t.d. í fyrir erni). Toms telur að lengri teighögg hans en áður hjálpi honum en hann er að leika með nýja Si3 dræverinn frá Ping og hefur lengt sig talsvert. Í gær var meðalhögglengd hans 309.5 yds. en meðalhögglengd hans yfir allt tímabilið er 286 yds. David Toms hefur unnið einn risatitil, “PGA Championship” í fyrra.

Spenna á Europan Tour (0 álit)

í Golf fyrir 21 árum
Á European Tour stendur nú yfir “Benson and Hedges International Open”. Mótið er haldið á The Belfry (Ryder Cup '02). Fyrir síðasta hring eru þrír leikmenn jafnir á -10 undir: Stephen Scahill, Paul Casey og Padraig Harrington. Þeir tveir fyrrnefndu áttu bestu hringina í dag, 65 og 66. Harrington hefur leitt frá degi eitt. Morgundagurinn verður hörkuspennandi. Angel Cabrera er einu höggi frá efstu þremur. Ég held með Paul Casey, ungum og efnilegum kylfingi frá Englandi. Hann hefur unnið eitt...

Tígrisdýr í felum (2 álit)

í Golf fyrir 21 árum
Í dag hefst 18. mótið í ár á PGA túrnum. Mike Weir mætir aftur til leiks eftir að hafa unnið Masters. Ég var að pæla með Tiger Woods, hann hefur bara spilað í 6 mótum í ár! Hvað er málið? Hann er að vísu vanur að spila aðeins í ca. 20 mótum á ári en mér finnst leiðinlegt að sjá hann aldrei með.

Könnunin (0 álit)

í Golf fyrir 21 árum
Ég gerði smá mistök í könnuninni: Hver er leikmaður ársins hingað til á US PGA mótaröðinni? Þetta á auðvitað að vera Mike Weir í stað David Weir…

Til hamingju... (1 álit)

í Golf fyrir 21 árum
… Lee Westwood með að hafa loksins komist í gegnum niðurskurð! Westwood er að keppa á HP Classic á US PGA mótaröðinni og er -11 undir eftir 3 hringi og í 26. sæti. Westwood hefur átt mjög slakt ár á Evrópsku mótaröðinni og kannski er best að hann haldi sig fyrir Vestan haf? Aftur á móti heldur David Duval áfram að gera í buxurnar. Í sama móti lék hann á 74 - 75 og náði ekki niðurskurðinum. Duval endaði í 149. sæti af 154 keppendum! Hvað er að gerast hjá Duval?

mbl.is með golfsíðu (1 álit)

í Golf fyrir 21 árum
Glæsilegt framtak hjá mbl.is! Nýja golfsíðan þeirra lítur mjög vel út og er greinilega lagt mikið í hana. Þessi síða verður örugglega sú mest sótta af golfurum enda full af skemmtilegu efni. Þarna er hægt að lesa fréttir af Toyota mótaröðinni, US PGA og European PGA ásamt umfjöllunum um nýjan útbúnað. Þeir sem sjá um golfari.is ættu að taka sér þessa síðu til fyrirmyndar! Two thumbs up :o) http://www.mbl.is/sport/golf

Bjöggi og Óli Már að keppa um helgina (0 álit)

í Golf fyrir 21 árum
Fyrsta mót Europro Tour í ár stendur nú yfir. Leikið er í Wales og heitir mótið SKY SPORTS CLASSIC. Björgvin Sigurbergsson og Ólafur Már Sigurðsson eru meðal þátttakenda, Bjöggi kom inn á 74 en Óli er enn út á velli og gengur vonandi vel. Hægt er að fylgjast með þessu hér: http://www.europrotour.com/tournament_detail.asp?tournament_id=3

Nýr Garcia ? (0 álit)

í Golf fyrir 21 árum
Sergio Garcia var 17 ára þegar hann vann mót á evrópsku mótaröðinni sem áhugamaður. Nú er annar 17 ára Spánverji að gera það gott á Canarias Open de España sem stendur nú yfir. Pablo Martin er jafn í forrystu fyrir síðasta hring á 19 undir pari. Sagt hefur verið að Pablo sé jafn efnilegur á Garcia var á sínum tíma. Gaman verður að fylgjast með honum í framtíðinni. http://www.europeantour.com/tournaments/fullreport.sps?iTourno=2003017&id=1078243&iTourID=1

Garcia góður en samt slakur (2 álit)

í Golf fyrir 21 árum
Sergio Garcia lék 3 undir pari í dag á European Tour. Því miður fyrir hann voru 80 manns betri en hann. Besta skor dagsins er 9 undir pari. Hvað er að gerast hjá Garcia? Hann hefur ekki getað neitt síðan eftir Ryder Cup!

Orlimar farið á hausinn (1 álit)

í Golf fyrir 21 árum
Hið fyrrum ágæta fyrirtæki Orlimar er nú farið á hausinn. Þeir áttu svona “one hit wonder” fyrir nokkrum árum þegar brautartrén þeirra voru mjög vinsæl…

4 menn að "dominera" (0 álit)

í Golf fyrir 21 árum
Það er athyglisvert að fjórir kylfingar eru komnir með 2 eða fleiri sigra á US PGA í ár, sérstaklega því aðeins 16 mótum er lokið. Þessir kylfingar eru: Tiger Woods (3 sigrar) Davis Love (3 sigrar) Mike Weir (3 sigrar) Ernie Els (2 sigrar) Í fyrra var aðeins TW með fleiri en 2 sigra og svo náðu sjö kylfingar að vinna tvisvar. Hvað ætli veldi þessu í ár, haldiði að þessir fjórir muni halda áfram að “domniera” út árið ??

Els í stuði (1 álit)

í Golf fyrir 21 árum
Ernie Els er að keppa á MCI Heritage mótinu (US PGA) sem haldið er á Harbour Town vellinum. Big Easy er í feiknastuði þegar þetta er skrifað og var -6 undir par á fyrri níu eða 30 höggum. Els leiðir með einu en mikið er eftir. Glen Day og Jesper Parnevik eiga bestu skor dagsins (-7) en vonandi nær Els að gera betur!
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok