Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Pipppi
Pipppi Notandi frá fornöld 94 stig

Ungir framsóknarmenn segja pass! (12 álit)

í Deiglan fyrir 21 árum, 1 mánuði
Vísir.is birtir ályktun ungra framsóknarmanna um íraksmálið í dag: http://www.visir.is/ifx/?MIval=frettir_btm&nr=1 35228&v=2 ,,Saddam Hussein og ríkisstjórn Íraks hafa margbrotið vopnahlésskilmála frá 1991 og gegn fjölda ályktana Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna um afvopnun frá þeim tíma. Á einhverjum tímapunkti er nauðsynlegt að grípa til aðgerða gegn þessum ítrekuðu brotum. Stjórn Sambands ungra framsóknarmanna telur hins vegar að ekki hafi verið reynt til fullnustu að ná fram friðsamlegri...

Forsætisráðherra sannaður lygari (30 álit)

í Deiglan fyrir 21 árum, 1 mánuði
Skilgreining (mín) á lygi, því að ljúga: Að setja fram fullyrðingu sem er ósönn, vitandi það að hún er ósönn á þeirri stundu sem hún er sett fram. Eitt af því sem komið er í ljós eftir alla hina skrautlegu umræðu um fund Davíðs Oddssonar forsætisráðherra og Hreins Loftssonar í London í fyrra er eftirfarandi: Davíð fullyrðir að Hreinn hafi tjáð sér á þeim fundi að sá síðarnefndi íhugaði að segja af sér sem stjórnarformaður Baugs. Davíð fullyrðir ennfremur að Hreinn hafi ekki minnst þar á að...

Politikusi er misboðið (16 álit)

í Deiglan fyrir 21 árum, 1 mánuði
Ómar R. Valdimarsson, ritstjóri politik.is, hefur kært Jón Gnarr fyrir lagabrot vegna útvarpsleikriti sem hinn síðarnefndi flutti á útvarpsstöðinni Múzik 88,5. Af forsíðu politik.is: "Hluti af leikritinu var eitthvað á þessa leið: Ólafur: Pabbi, má ég fá ís? Hannes: Nei, þú ert svo ógeðslegur og feitur. Ólafur: Gerðu það pabbi. Hannes: Ef þú kyssir mig. [Ólafur kyssir föður sinn á munninn] Hannes: Ekki á munninn, gefðu mér góðan koss á ennið og dragðu hárið frá áður en þú gerir það. [Ólafur...

Hermann Göring kennir stríðsæsingar (3 álit)

í Deiglan fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Eftirfarandi er hluti viðtals sem Gustave M. Gilbert Þýskumælandi útsendari bandarískrar leyniþjónustu og sálfræðingur) átti við Hermann Göring í fangaklefa sínum kvöldið 18. apríl 1946: We got around to the subject of war again and I said that, contrary to his attitude, I did not think that the common people are very thankful for leaders who bring them war and destruction. “Why, of course, the people don't want war,” Goering shrugged. “Why would some poor slob on a farm want to risk his...

Sjálfstæðisflokkurinn skýtur sig í fótinn (16 álit)

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 11 mánuðum
Sagt er að Sjálfstæðisflokkurinn skjóti sig í fótinn fyrir hverjar kosningar. Svo mikið er víst að það sannast í þetta skipti svo um munar, þótt ekki sé ég með fleiri dæmi þess á hraðbergi (kannski aðrir Hugarar geti hjálpað upp á). Heilbrigðisráðherra, framsóknarmaður, undirritar ásamt borgarstjóra viljayfirlýsingu um byggingu nýrra hjúkrunarrýma fyrir aldraða. Fjármálaráðherra, sjálfstæðismaður bregst reiður við, kallar gjörninginn ómark m.a. vegna þess að ekki hafi fengist vilyrði fyrir...
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok