Norah Jones, viss tímabil með Pink Floyd, Tim Buckley, Mugison, Live, Enya … Annars gæti ég aldrei verið með manneskju sem fílaði ekki svipaða tónlist og ég :o
Gyltur eru reyndar sjaldan notaðar í skinku. Það er ekki nema stundum að eitthvað úr kjötinu sé notað í t.d. smurost og svoleiðis dót, jafnvel eitthvað í pylsur. Það væri ekki nema kannski í bónus skinkuna. (Hef unnið við þetta :P) Gyltukjöt er algjör viðbjóður.
Húsó? Húsasmiðjuna? Ég er nú alveg hættur að fara þangað að kaupa mér í matinn, eintómir Viðbjóðar þar. Allavega í timburdeildinni. En annars er þetta rétt hjá þér, laukur er uppistaðan í (góðum) mat.
Andstæðan við niðurkólnungarbragð, right? :P Nei eins og ég sagði, þessi heppnaðist alveg ágætlega, enda var þetta ágætt eintak af bayonne skinku. Spurning um að rölta bara niður á Vatnleysuströnd og þakka móður gríssins persónulega fyrir.
Ég er algjörlega sammála Damphir. Ef þú ert eitthvað leið/ur núna, þá er það eitthvað vandamál sem þú getur leyst. Það er endalaust af ótrúlega áhugaverðu og skemmtilegu drasli hvert sem þú lítur. Prófaðu að horfa á hlutina með þessu sjónarmiði. Það hljómar kannski ekkert voðalega kúl, en prófaðu að reyna að sjá hvað eitthvað ótrúlega einfalt og ‘casual’ getur verið óendanlega fallegt og áhugavert. Ég þekki svosem alveg nokkurnvegin þá stöðu sem þú ert í, hef alveg fengið minn skerf af...
Þetta kom reyndar alveg merkilega vel út. Ég bjóst eiginlega við því að sneiðin yrði þurr og ógeðsleg eins og t.d. hamborgarhryggur þegar hann er hitaður upp aftur, en svo var ekki. Spurning hvort ólifuolían hafi átt einhvern þátt í því, það er svolítið annað en að hita hana upp í örbylgjuofni :)
Fita sem er mjúk við lægri hita en önnur fita. T.d. geturðu verið með fitu úr ákveðnum pörtum af svíni sem er alveg GRJÓTHÖRÐ við 4°c, en síðan ertu með ólifuolíu eða fitu úr einhverjum fisk sem lifir á köldu svæði og sú fita er bara fljótandi við 4°c. Eða mig minnir allavega að mjúka fitan hafi verið fjölómettaða. En ég veit ekki hvort það geri nokkuð gagn fyrir þig. Rakakrem og vettlingar er örugglega bara málið.
Sannað að golfstraumurinn á ekki eftir að breytast á næstum 100 árum, eða eithverstaðar heyrði ég það. Annars veit maður ekkert hverju maður á að trúa.Trúðu allavega ekki því sem þú heyrir að sé “sannað”.
Sæt græja. Missi ennþá svefn yfir því að hafa ekki gefið mér betri tíma í að prófa hann :P Annars finnst mér þetta sniðug lausn á vandamáli þarna með 22. annað fret. Fyndið samt, á mínu bassa eru 24 fret og þau eru öll afar aðgengileg. Boddíið á honum er reyndar alveg funked up.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..