Hreyfing einnar sameindar hefur áhrif á næstu sameind við hliðina, þannig jafnast hitinn út (þetta er þó bara ein af leiðunum sem varmi getur dreifst með). Hiti í efni er vel hugsanlega eitthvað ójafn, en að í 20°c heitu vatni séu 100°c heitar vatnssameindir (nema þá kannski í einhverjar míkrósekúndur) finnst mér frekar hæpið.