Afsakaðu, en mér þykir þetta alveg yndislega vel orðað hjá þér og datt í hug að spyrja þig hvort ég mætti skella þessu í undirskriftina mína í smá stund? :)
Nei ég ætla nú að vona ekki :-) Breytir samt litlu um það sem ég sagði. (Annars vil ég benda þér á að m.a. í orðinu “klífur” kemur fram hið skemmtilega mikilvægi þess að skrifa rétt! Miðað við að skrifa “klífur” mætti halda að þú værir að meina að hann hafi klifið dauðahafið! Ef þú hefðir hinsvegar skrifað “klýfur” (Sem er hið rétta) hefði það ekki farið á milli mála að þú værir að meina að hann hafi klofið dauðahafið.)
Ég er aðallega að kvarta undan því að fólk sé að nota þetta svotil að ástæðulausu. Að það sem fólk er að segja í stórum hluta tilfella þegar það segir þetta, sé á engan hátt tæknilegt eða tæknilega séð í rauninni. Annars hef ég nú heyrt marga aðra segja að það sé ekkert vafamál að margfaldur ljóshraði sé einfaldlega óraunhæfur, ekkert vafamál með það heldur. (í þeim skilningi að engar upplýsingar geti farið hraðar en ljósið. Vissulega er hægt að ímynda sér hraða sem er meiri en hraði...
Svo vitað framarlega sem hugvísindi leyfa eru engin takmörk verið fyrir hraða.. Ljóshraði vissulega.. En hvað er tvöfaldur ljóshraði?Þó að maður geti búið til orðasamband sem lýsir einhverju, þá þýðir ekki að það sé raunverulegt. “Ferhyrndur hringur” og “einhyrningur” t.d. Kannski er það bara súra málfarið þitt, en ég hef einhvernvegin ekker voðalega mikla trú á því sem þú ert að segja.
Sér fólk í alvörunni ekki muninn á eftirfarandi setningum: “Á að koma efnafræði eða náttúrufræðiáhugamál?” eða “Ætti að koma efnafræði eða náttúrufræðiáhugamál?”Hvað helduru að ég hafi verið að meina með þessu?
Veit nú ekki alveg hvort það sé rétt að blanda “Guð-hrædd” inn í þetta. Það er allavega mín reynsla að fólk sé “gott” og “slæmt” nokkuð óháð því hversu guðhrædd það er. En annars er þetta góð pæling. :O
Mikið þarftu alltaf að vera með leiðinlegan móral :( Ég er rétt að byrja! :D Síðasta svar frá mér var bara tilraun til kímni, sem höfðar greinilega ekki til alra. En eins og ég segi, það skiptir mig minnstu máli hvort pro wrestling fái að vera hér eða ekki. Það truflar mig ekki þó ég hafi ekki áhuga á því. Sömuleiðis sé ég ekki af hverju þessi þráður sem við erum að tala á núna ætti að trufla mig. Þannig að ég spyr: hver hérna er að grenja? :)
Ég fatta ekki af hverju menn geta verið á móti því að það sé talað um wrestling hér en ekki á /leiklist, á meðan mönnum finnst í lagi að það sé talað um box hér en ekki á /boxÞað er þetta sem ég er að segja að sé kjánaleg hegðun og ég fatti hana ekki.
Ég held að það að þú sért ósammála honum sé ekki kjarni málins, heldur hvað þín aðferð til að komast að þinni niðurstöðu er í rauninni óáreiðanleg og best til þess fallin að fast móta manni skoðanir sem eru myndaðar svotil óháð því hversu réttar eða raunhæfar þær eru.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..