Þessi maður er örugglega með betri ræðumönnum á Íslandi og er fljótari en ég veit ekki hvað að komast undan svörum eða snúa út úr spurningum en hann trúir virkilega þessari vitleysu sem hann “selur”. Hann kom í skólann minn (MR) og talaði um samkynhneigt fólk og sagði að samkynhneigður maður á að meðaltali u.þ.b. 250 bólfélaga á ári! Ég er ekki að ýkja, ljúga eða hækka töluna sem sprakk útum munninn á honum, þessi maður heldur því fram að samkynhneigðir menn eiga næstum því einn bólfélaga á dag. Þessi maður er fáránlegur. Hann trúir því sem stendur í biblíunni eins og það séu fréttir úr mogganum “þetta er engin túlkun! NÓI SAFNAÐI Í ALVÖRUNNI ÖLLUM DÝRUM Í HEIMI OG SETTI ÞAU Í BÁT!!!” þetta er eitt af ófáum gullkornum sem hann reytti af sér. Endilega segið mér hvað þið hafið að segja…