Sá þetta á netinu, fannst þetta spauglegt :)
Mamma mín er ekki beint svona, en mjög nálagt því :)



Var mamma þín vond? Mín var það!
Við áttum verstu mömmu í heiminum!

* Þegar aðrir krakkar borðuðu nammi í morgunmat fengum við hafragraut.
*Þegar aðrir krakkar fengu pepsi og súkkulaði fyrir hádegismat fengum við
samlokur.
*Og menn geta bara rétt ímyndað sér hvað hún gaf okkur í kvöldmat,
allskonar MAT.
* Mamma vildi alltaf vita hvar við vorum, ALLTAF, það hefði mátt halda að
við værum í fangelsi. Hún vildi vita hverjir voru vinir okkar og hvað við
vorum að gera með þeim.
*Hún krafðist þess að ef við segðumst ætla að fara eitthvert í klukkutíma,
þá væri það aldrei meira en klukkutími.
*Þegar var FRÍ í skólanum þurftum við að vinna. Við þurftum að þvo diskana,
búa um rúmin, læra að elda, þvo þvottinn og annarst önnur leiðinleg störf.
Við héldum að hún lægi andvaka á nóttinni bara til að pæla út hvað hún ætti
að láta okkur gera daginn eftir.
*Hún lét okkur alltaf segja sannleikann, allann sannleikann og ekkert nema
sannleikann.
*Þegar við vorum unglingar, gat hún lesið hugsanir okkar.
ÞÁ VAR LÍFIÐ ERFITT!

*Þegar allir fengu að fara á djammið og skemmta sér 12 eða 13 ára, fengum
við ekki að gera neitt fyrr en við vorum 16 ára.
*Mömmu vegna misstum við að fjölda mörgu og miklu sem aðrir krakkar gerðu.
*Ekkert okkar hefur verið tekin fyrir að stela úr búðum, eyðileggja fyrir
öðrum eða verið tekin fyrir nokkurt afbrot af neinu tagi.
ALLT HENNI AÐ KENNA


NÚNA ERUM VIÐ FLUTT AÐ HEIMAN.
*Guð-hrædd, menntuð og gott fólk.
*Við gerum okkar besta að vera vondir foreldrar eins og mamma okkar var.
*Ég held að það sé það sem er að í heiminum í dag

ÞAÐ ER BARA EKKI NÓG AF VONDUM MÖMMUM LENGUR
Ofurhugi og ofurmamma