Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Masko89
Masko89 Notandi frá fornöld 34 ára kvenmaður
114 stig
“A smile is the curve that sets everything straight.” -

Jólalegt úti! (19 álit)

í Hátíðir fyrir 18 árum, 6 mánuðum
Ég vaknaði í morgun, ekki eins þreytt og vanalega að sökum vetrafrís. Þegar að ég opnaði augun og var búin að hrista mig upp úr svefninum, þá fannst mér eitthvað breytt. Einhver stemmning var í loftinu. Mér fannst eitthvað svo jólalegt! Ég stóð upp og fór fram í eldhús. Ég var að fá mér vatn þegar að ég lít upp og viti menn, það hafði snjóað! Það snjóar enn og þótt að ég vilji helst ekki komast í jólagírinn í október, þá get ég ekki varist því! Það er eitthvað jólalegt við það að vera í fríi...

ýmislegar hugsanir! (38 álit)

í Rómantík fyrir 18 árum, 8 mánuðum
Magnað með þessa ást. Maður getur ekki lifað án hennar, þá líður manni eitthvað svo tómlega. En samt sem áður er ástin alltaf að skilja mann eftir í sárum. Ég hef elskað og ég hef verið særð. Að mínu mati er ekkert betra í þessu lífi en tilfinningin þegar að manneskjan sem að þú elskar heldur þétt utan um þig og þér finnst þú vera örugg/ur. Laus frá öllum heimsins vandamálum. Ég er nú kannski ung ('89 model) en ég hef fengið þau forréttindi að upplifa sanna ást. Þegar að maður er ástfanginn...

Pælingar (10 álit)

í Sorp fyrir 18 árum, 9 mánuðum
Ég vil taka mér þann tíma að tala um alvöru mál, um hin ýmsu málefni þjóðfélagsins… Í fyrstu vil ég skrifa eilítið um Kynferðisafbrotamenn (sérstaklega gegn börnum) Hvað er að svona mönnum (ég skrifa mönnum því að það eru jú í flestum tilfellum karlmenn sem að fremja svona ógeðslega glæpi) sem að gera svona lagað?! Þetta er sick og viðbjóðslegt á allann sinn hátt! Flesta glæpi er hægt að réttlæta en kynferðis glæpi er engan veginn hægt að réttlæta á neinn hátt!! Svona fólk sem að fremur...

Nokkur af mínum ljóðum (1 álit)

í Ljóð fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Ástin eins og hún er Ég kalla á þig en þú ekki heyrir. Þú lítur á mig en ekki mig sérð. Ég snerti þig en þú finnur ei. Ég brenn af þrá, Þrái að finna hönd þína við kinn mína, Varir þínar við varir mínar, En það gerist ekki. Ástin er blind en hatrið enn blindara. Verst að ég get ekki hatað….. Ekki þig. Minningar Minningar, Læðast að manni fljótari en vindurinn. Minningar, Ferð um lífið. Minningar, Sumar góðar, aðrar slæmar. Minningar, Æskunnar gull. Þreyttar sálir Þreyttar sálir veltast um á...

Náttúruvísindi (11 álit)

í Skóli fyrir 18 árum, 11 mánuðum
Hérna eru einhverjar glósur úr náttúrufræði, afsakið hvað þetta er illa sett upp, ég copyaði bara úr word og það ruglaðist allt og eitthvað rugl bara =) Annars vona ég að þið getið eitthvað notað þetta! Veirur •Veirur taka ekki upp næringu og losa sig ekki við úrgangsefni •Geta ekki fjölgað sér nema með aðstoð lifandi fruma •Veira er úr erfðaefni og utan um það er prótínhjúpur •Erfðaefnið tekur þátt í myndun nýrra veira •Prótínhjúpurinn ver veruna og velur sér fórnalamb •Fórnalambið (fruman)...
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok