Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Þakklæti til aðstandanda fbf.fortress.is (12 álit)

í Battlefield fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Mig langaði að skrifa hérna smá svona virðingarvott og þakklætisvott til þeirra sem sjá um vefsíðuna bf.fortress.is og standa sig að mínu mati feiknarlega vel í að sækja viðbætur og úrbætur fyrir bf1942 og setja upp hjá sér svo við getum sótt á innanlandsniðurhali. Ég hef aldrei tekið eftir því að menn hafi sýnt þessu sérstakt þakklæti og er það náttúrulega ekki gott þar sem þetta er stórkostlegt framtak. Það er meira en að segja það að vera að vakta allar uppfærslur fyrir einn leik og vera...

Man einhver eftir gömlum..... (3 álit)

í Teiknimyndir fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Man einhver eftir gömlum teiknimyndum, þær voru um dýr sem voru samansett úr 2 dýrum, td, var fjólublár fíll með vængi og þessháttar, ég man ekki mikið meira um þessar teiknimyndir, nema að þær voru svaka litríkar og flottir litir í þeim, sérstaklega miðað við hvað það er langt síðan þær voru sýndar. Ég man samt að þær voru sýndar á sunnudagsmorgnum á undan eða eftir gummibears og þær voru í þvílíku uppáhaldi hjá mér. Þær voru sennilega sýndar fyrir svona 15 árum:) Ef einhver man eftir þeim...

kannast við íslenska hljómsveit sem hét exit? (1 álit)

í Músík almennt fyrir 20 árum, 8 mánuðum
Kannast einhver við íslenska hljómsveit sem hét Exit? og spilaði á undan black sabbath og jethro tull á tónleikunum sem voru á skaganum ´93 og gætu kannski bent mér á hvar ég gæti nálgast efni með þessari hljómsveit?

Hvað eru sumir að gera á þessu áhugamáli (3 álit)

í Kettir fyrir 20 árum, 8 mánuðum
Ég hef verið að skoða þetta áhugamál af og til seinustu mánuði og uppá síðkastið hef ég tekið eftir leiðinlegum breytingum sem eru farnar að gera vart við sig.Einhverra hluta vegna eru nokkuð margir einstaklingar, ekki neinn ógurlegur fjöldi en nokkrir samt, farnir að taka það að sér að svara þeim sem eru að koma með greinar og svona skemmtilegar litlar lýsingar á köttunum sínum eða sögur um þá með skítkasti og háði. Mér finnst það óþolandi að fólk geti ekki fengið að vera á þessu áhugamáli...

Búið að hjálpa lítili kisu en vantar meiri ráð samt (1 álit)

í Kettir fyrir 20 árum, 9 mánuðum
Hæ hæ…langaði bara að segja ykkur að honum Gosa litla sem var ofsa máttlaus og ég skildi ekkert af hverju vældi og vældi um að komast út er farið að batna. Það kom í ljós að bæði hann og bróðir hans eru með kattainflúensu og þeir eru komnir á pensilín og fengu sterasprautur. Gosi og Pjakkur komu reyndar báðir úr kattholti og dýralæknirinn sagði að sér þætti mjög einkennilegt ef að það væru ekki allir kettir þar bólusettir fyrir inflúensu en það svosem skiptir ekki máli því þeir verða orðnir...

Vantar hjálp með litla kisu (3 álit)

í Kettir fyrir 20 árum, 9 mánuðum
Ég og kærastan mín vorum að ættleiða 2 kisustráka sem eru 4 og 5 mánaða og miklir vinir. Annar þeirra er fullur af fjöri og leik og vill svo fá knús og lúlla hjá manni inná milli. Hinn er hins vegar allt annað mál, þeir voru voða svipaðir fyrsta kvöldið og sváfu á millu okkar í risavaxna rúminu okkar og ekkert vandamál með en svo annan daginn fór hann að slappast og er svo alltof alltof rólegur. Hann kemur ekki til okkar þegar við köllum á hann og þótt það sé kannski snemmt eftir bara 4 daga...
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok