Mig langaði að skrifa hérna smá svona virðingarvott og þakklætisvott til þeirra sem sjá um vefsíðuna bf.fortress.is og standa sig að mínu mati feiknarlega vel í að sækja viðbætur og úrbætur fyrir bf1942 og setja upp hjá sér svo við getum sótt á innanlandsniðurhali. Ég hef aldrei tekið eftir því að menn hafi sýnt þessu sérstakt þakklæti og er það náttúrulega ekki gott þar sem þetta er stórkostlegt framtak. Það er meira en að segja það að vera að vakta allar uppfærslur fyrir einn leik og vera nánast alltaf kominn með allt sem vekur athygli og eftirspurn samdægurs og það kemur út í útlöndum. Þótt spilamennskan á serverum á íslandi hafi farið hrakandi að mínu mati þá finnst mér ennþá gaman og gott að sjá að menn í kringum þetta eru duglegir og ósérhlífnir við það að aðstoða náungann til þess að ná sér í allt það nýjasta fyrir leikinn á sem skemmstan og ódýrastan máta.
Endilega vottið bf.fortress.is þakklæti ykkar og klöppum fyrir þeim, þeir eiga það skilið.

Hafið það svo gott