Man einhver eftir gömlum teiknimyndum, þær voru um dýr sem voru samansett úr 2 dýrum, td, var fjólublár fíll með vængi og þessháttar, ég man ekki mikið meira um þessar teiknimyndir, nema að þær voru svaka litríkar og flottir litir í þeim, sérstaklega miðað við hvað það er langt síðan þær voru sýndar. Ég man samt að þær voru sýndar á sunnudagsmorgnum á undan eða eftir gummibears og þær voru í þvílíku uppáhaldi hjá mér. Þær voru sennilega sýndar fyrir svona 15 árum:) Ef einhver man eftir þeim eða einhverju úr þeim endilega látið mig vita. Ef þið hafið ekkert annað að segja en að setja út á þetta þá keep it to yourself.