Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

LyppaN
LyppaN Notandi síðan fyrir 20 árum, 6 mánuðum 35 ára kvenmaður
130 stig

Sólarlag á Öxarfjarðarheiði (1 álit)

í Ljósmyndun fyrir 14 árum, 1 mánuði
Sólarlag á heiði inn af Melrakkasléttunni - á leið til Þórshafnar.

Þegar hann fer - hvert fer ég? (22 álit)

í Rómantík fyrir 14 árum, 1 mánuði
Þegar ég var 16 ára flutti ég að heiman, til stráks á hinum enda landsins og var þar í 3 ár. Þegar ég loks fór þaðan og kom aftur heim byrjaði ég með nýjum strák mánuði síðar – strák sem ég trúði að væri draumaprinsinn minn og að líf mitt væri glæst framundan. Það entist í 2 ár – þá vildi hann losna út. Ég gerði allt sem ég gat til að halda í hann og framlengja hamingjunni minni – en allt kom fyrir ekki. Hann sagði hina klassísku setningu að þetta væri ekki ég, heldur hann. En tilfinningin...

Vetrarstökur (1 álit)

í Ljóð fyrir 15 árum, 5 mánuðum
Var aðeins að leika mér að gera stökur í skammdeginu.. Vetrarsólin vaknar, vinnur myrkrið kalt. Von í sálu saknar, sumars þúsundfalt. —- Kvöldin í desember dásamleg eru, þar dimma mætir ljósum. Birtan lifir í ljósaperu, og lífið er dans á rósum. —-

týndar myndir á vélinni minni (1 álit)

í Ljósmyndun fyrir 15 árum, 6 mánuðum
Var að velta fyrir mér hvort einhverjir hafa lent í því að týna myndum af vélinni ykkar? Ég lenti í því um daginn.. sá myndirnar seivast en svo þegar ég ætlaði að skoða þær og setja inní tölvuna þá voru heilmargar horfnar inná milli.. skil ekki skýringu á þessu. Heilmikið mál að eyða þeim svo ekki hefur það gerst óvart..

Ferðalagið hefst... (10 álit)

í Ljósmyndun fyrir 15 árum, 7 mánuðum
…tekin á Langanesi sumar 2008.

Grænir spariskór?? (5 álit)

í Tíska & útlit fyrir 15 árum, 11 mánuðum
Mig vantar græna spariskó með kannski smá hæl.. en annars er aðalatriðið að þeir séu grænir;) Getur einhver bent mér á búðir sem selja græna skó:) ??

Sönn ást - draumaprinsinn er til! (54 álit)

í Rómantík fyrir 16 árum, 3 mánuðum
Lífið sýnir á sér ýmsar myndir, sumar eru slæmar og aðrar góðar en allar fara þær í reynslubankann. Þegar manni finnst allt vera í rústi - þá getur lítil ljósglæða komið fram í myrkrinu og svo umbreyst í bjart og fallegt ljós sem fyllir líf manns af hamingju og gleði. Ég hélt alltaf að í samböndum væri eðlilegt að rífast, að það væri eðlilegt að maður sæi marga galla á hinum aðilanum og að ástin dvínaði og áhuginn á hinum aðilanum með tímanum. Ég trúði heldur ekki að maður gæti fundið hinn...

Mín reynsla - komast yfir sambandsslit (23 álit)

í Rómantík fyrir 16 árum, 7 mánuðum
Fyrir um mánuði síðan hætti ég í sambandi, þriggja ára sambandi sem var 2 og hálfs árs sambúð.. Ég byrjaði ung í sambandinu og flutti ung að heiman til hans. Svo endaði þetta, ég ákvað að ég vildi hætta í þessu sambandi og flutti aftur heim. Ég vil bara aðeins miðla minni reynslu um þetta þar sem mér finnst ég alltaf sjá fólk taka vitlaust á þessu og skemma fyrir sér… Ég vil samt benda á að það er engin viss formúla fyrir þessu, þetta er afar persónubundið… Mér var sagt þegar sambandsslitin...

Ást eða vani? (28 álit)

í Rómantík fyrir 17 árum
Já sambönd… eitthvað sem margir geta ekki lifað án.. sumir vilja ekkert hafa með og forðast þau… og enn aðrir þrá þau en aldrei fá? Ég spyr sjálfa mig stundum að því… þegar fólk hefur verið saman í langan tíma (mislangan þó) hvort er það þá saman út af brennandi ást eða bara vananum…? Ég hef reyndar litla reynslu.. hef einungis verið í einu virkilega allvöru sambandi þannig að ég veit lítið um það… en sambandið sem ég er í núna verður bráðum þriggja ára og ég spyr mig oft í því hvort ég sé í...

Brooke = óþolandi (13 álit)

í Sápur fyrir 17 árum, 1 mánuði
Vá hvað Brooke fer í mínar fínustu taugar!! Hún er bara svo óþolandi! OG hvernig í óskupunum fer hún að því að ná öllum sviktu og fyrrverandi mönnum sínum til að halda með sér og standa með sér…. ég skil það ekki!! Ridge á bara að byrja með Taylor og búið mál! Þau höfðu eitthvað almennilegt going.. þótt ég sé reyndar búin að láta Ridge fara í mínar fínustu taugar uppá undanfarið… þá er Taylor svo góð fyrir hann og MIKLU betri heldur en Brooke!! Brooke hefur ekkert nema líkamann og einhvað...

Tigi/Catwalk á AK. (2 álit)

í Tíska & útlit fyrir 17 árum, 2 mánuðum
Hvar á Akureyri er hægt að kaupa Tigi og Catwalk vörur?? Veit það einhver:D??

Hreinsivörur fyrir feita/bólótta húð...? (4 álit)

í Tíska & útlit fyrir 17 árum, 10 mánuðum
Ég var að spá.. Hvaða hreinsikrem notið þið við bóluvandamálum?? Ég hef nú ekki fjárfest í neinu svaka dýru.. bara eitthvað úr Hagkaup t.d. Garnier Pure sem á að vera eitthvað fyrir feita og bólótta húð…. eða hvað finnst ykkur um þetta OXY sem er verið að auglýsa núna?? Finnst ykkur betra að kaupa eitthvað fínt og dýrt til að hreinsa húðina.. eða á maður frekar að splæsa bara í mjög gott rakakrem…?

Rétt hitastig... á sléttujárnum? (7 álit)

í Tíska & útlit fyrir 18 árum, 1 mánuði
Sko.. ég á sléttujárn sem er með mismunandi hitastillingum… og var að pæla hver munurinn sé á hitanum.. semsagt hvort maður t.d. eigi að nota mikinn hita þegar maður er með mjög leiðinlega liðað hár (eins og ég..) eða hvernig þetta virkar eiginlega… Ég held mig alltaf bara við sirka sama hitann.. eða svona um 140 - 150°.. en ég hef samt ekki hugmynd um hvað er best að gera… Endilega svarið ef þið hafið einhverja hugmynd um þetta..:) Fyrirfram Takk:)

Vinátta kynjanna? (37 álit)

í Rómantík fyrir 19 árum, 4 mánuðum
Ég hef lengi verið að pæla í hvernig fólk lítur á vináttu kynjanna. Af hverju fólk þarf alltaf að miskilja spjall milli tveggja vina af sitthvoru kyninu eða eitthvað þvíumlíkt. T.d. tökum sem dæmi. Stelpa (Gunna) um 16 ára labbar út í búð og sér þar bekkjasystur sína. Gunna er með frænda sínum sem er sirka á sama aldri og hún og þau eru mjög góðir vinir og náin frændsystkini. Bekkjasystirin veit ekki að hann er frændi hennar og stekkur strax á Gunnu spyrjandi hana ýmissa spurninga um hvort...

Rakstur á höndum?!?!?!?! (4 álit)

í Tíska & útlit fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Smá pæling! Ég er nefnilega með það “vandamál” að vera með slatta af hárum á höndunum!!! Svo var ég að komast að því að ein stelpa í bekknum RAKAR Á SÉR HENDURNAR?!?!?!:S eru margir sem gera það eða??? Hvað ætti maður annars að gera ef maður rakar ekki?!?? Svo líka eins og hár í kringum nafla svona sportrönd eða hvað sem það kallast..ég hef heyrt um stelpur sem raka það líka!!:o Er það bara normalt eða???? takk fyrir kv. capybara

hmmm...Nokia 3410 ?!?! (1 álit)

í Farsímar fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Smá pæling.. Ég á nefnilega nokia 3410 síma og er mjög ánægð með hann, bara frábær sími að mínu mati!! En málið er það að það er alveg hætt að selja þennan síma, sem ég skil ekki?!?! Og svo verð ég frekar pirruð á því, að út af því að hann er ekki lengur seldur, held ég neins staðar, þá eru ekki til nein flott front á hann, ekki allavegana þar sem ég hef leitað, sem er á nokkuð mörgum stöðum..!! Bara hvort þið vitið eitthvað um þetta t.d af hverju það var hætt að selja hann og hvort að...

VANGADANS!!!???? (41 álit)

í Rómantík fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Ég fór að hugsa um daginn..í sambandi við vangadans… Ég var nebbnilega á balli um daginn..og hef aldrei vangað við neinn strák..og þegar maður var yngri og sá eldri krakka vera að vanga, hvað það hlyti að vera erfitt að vera að vanga við einhvern sem maður hefur kannski engan áhuga til eða eika… Manni fannst þetta svo mikið mál einhverra hluta vegna..og var ekkert að skilja..!!! En svo einhvernvegin þegar maður eldist fer maður ææ..ég veit ekki..að hugsa þetta öðruvísi…eða ég lenti...
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok