Þar sem við erum að tala um bíó þá langar mig eindregið á benda á hvað það kostar ótrúlega mikið. Ekki bara miðinn.. Heldur popp og kók og allt. Eitt glas af vatnsþynntu kóki á 240 kall eða eitthvað? Blákalt rán.
Ég veit nú ekki alveg með það sem einhver sagði hérna að “stelpur fullorðnast of hratt” eins og að það sé eitthvað sem við gerum viljandi.(Jú sumar eru eitthvað rosalega að flýta sér) en.. Stelpur þroskast bara hraðar en strákar, andlega og líkamlega.
Hvor ætli sé betri? Þetta er bara rugl. Ef þú ert hrifin af öðrum hvorum þá “veluru” hann auðvitað. Ef þú ert hrifin af hvorugum þá “veluru” hvorugan. Það er bara bull að vera á föstu með einhverjum bara til að vera á föstu með einhverjum. Frekar að bíða eftir einhverjum sem þú ert hrifin af.
Eitthvað mest fáránlega lag sem ég hef séð/heyrt. Það var einhver fáklædd kona(aldrei séð það notað áður í myndbandi..) sem söng eitthvað á borð við “Don't you wish your girlfriend was hot like me” Án vafa ömurlegasti texti allra tíma, og takturinn var sá sami og í 100 öðrum lögum. Það ætti að banna svona sjón- og hljóðmenganir.
Shine On You Crazy Diamond er með fallegri lögum sem ég hef heyrt. Jú það tekur smá tíma að “byrja” finnst sumum.. En mér finnst forspilið yndislegt. Svona eins og góður forleikur :)
Ég held.. að á sumum “levelum” stjórnir þú heilanum, en á öðrum stjórni hann þér. Þú getur t.d. ekki alltaf ráðið því hvað þú hugsar, getur ekki alltaf stjórnað löngunum þínum, né ósjálfráðum viðbrögðum.
Eignast fiðrildi sem gæludýr, fara í teygjustökk og fallhlífastökk. Fara til Rússlands, Brasilíu og Afríku. Fara á fílsbak og úlfalda. Sjá ljón. Og já.. svo eitthvað svona.. klára menntó og háskóla og whatever.
Það er ekki bara Forsíðan. Syndir áhugamálið er.. sérlega illa statt. En þetta er svona.. fólki finnst það geta sagt hvað sem er, með því að fela sig bakvið nick.
Elska Queen :D Meðlimur: Freddie gamli :) Lag(lög): Boh Rhap, The Show Must Go On, Mother Love, The Prophet Song.. og fleiri. Plata: Get eiginlega ekki valið.. A night at the opera, Made in Heaven og Innuendo held ég.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..