Ég er 14 ára stelpa sem er hrifinn af tveimur strákum. Þeir hafa báðir sína kosti og galla. Ég er búin að vera að pæla í því hvor þeirra væri betri fyrir mig….

nr.1

Fyrsti strákurinn er mjög sætur og skemmtilegur. Gallin við hann er að hann býr í Biskupstungum en ég á Akureyri og við hittumst mjööög sjaldan. Hann er líka soldið lávaxinn og það lætur hann virka mikið yngri en hann er :S Mér finnst það eitthvað svo óþæginlegt (hef áður verið með litlum náunga) Ég veit að hann er hrifinn af mér þar sem hann hefur sagt það.

nr.2

Hinn náungin er geðveikt sætur og hávaxinn og allt það. Býr hér og þannig. Málið með það að ég veit að hann hefur stundað kynlíf og ég er svo stressuð um að hann fari kannski að þrýsta á mig og svoleiðis en ég finn að ég er ekki tilbúin í það og verð það öruglega ekki næsta árið. Ég veit ekki alveg hvort hann sé hrifinn af mér en vinur hans hefur sagt mér að honum finnist ég sæt.

Þannig að ég bara veit ekki allveg hvað ég á að gera :S
Voulez-vous coucher avec moi, ce soir?