Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Leoncie - Misskilinn snillingur (68 álit)

í Músík almennt fyrir 20 árum, 1 mánuði
Leoncie (aka the indian princess) er íslenskur tónlistarmaður sem að ég fíla mikið. Hún fæddist samt í Indlandi og átti heima þar. þangað til hún flutti til íslands .. Hún hefur átt erfitt seinustu ár í baráttu við fordóma íslendinga sem að hafa ekki vit á að fíla hennar tónlist,.. fyrir utan nokkra þó. EN ég kýs að kalla hana misskilinn snilling. Leoncie byrjaði í tónlistarkennslu þegar hún var 5 ára… Pabbi hennar kenndi henni að syngja og spila Jazz músík. Þegar hún varð aðeins eldri lærði...

Er eitthvað ískyggilegt í gangi? (27 álit)

í Geimvísindi fyrir 20 árum, 9 mánuðum
Aðfaranótt 29.Júlí 2003 vorum við: Dagbjört og Ragnheiður að labba úti um kvöld. Það var rosalega kjurrt veður, ekki beint dimmt en samt ekki bjart. Meira svona dimmljósblár himininn. Það voru nokkuð mörg ský á himninum. Okkur fannst þetta svo æðislegt að við ákváðum að leggjast í grasið um stund, horfa upp í himininn og tala saman. Ekkert að því, nema allt í einu sáum við eitthvað ljós. Geðveikt lítið en samt skært. Við horfðum á það lengi og veltum því fyrir okkur hvað þetta væri. Flugvél,...

Fúsi okkar supermodel (7 álit)

í Sorp fyrir 20 árum, 9 mánuðum
Þetta er Fúsi örðu nafni: Lúðvík Fúsi Skúlason Og hann er…þarf að segja meira? Fúsi er eins og við köllum það MÓDEL… Hann hefur starfað í þessum bransa í þó nokkur ár. Margir karlmenn hafa reynt að feta í fótspor hans, en illa hefur til tekist því að hann Fúsi er á toppnum í þessum bransa og hefur náð nokkuð langt. Og allt er útlit hans velgengninni að þakka. Eins og þið sjáið er hann mjög fríður ungur maður og á eftir að ná jafnvel enn lengra í módelbransanum því að margar dömur heillast af...

Athyglis sjúkur páfagaukur (4 álit)

í Gæludýr fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Páfagaukurinn minn hún Sól er farin að koma með svona frekjuköst við og við og það er vegna þess að hún fær ekki næga athygli greyið út af því að við erum búin að vera með hundinn hans afa míns lánaðan í 1 og 1/2 mánuð. Það er ekkert smá fyndið! Hún öskrar og öskrar þegar við erum að fara að sofa til þess að það komi eikker að tala við hana og oftast er það gert! Hún gargar svo á greyið hundinn sem hefur ekki gert henni neitt. Og svo fer hún í fýlu til að láta vorkenna sér. Og svo þerr mar...

Hann nagar neglur! (5 álit)

í Hundar fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Ég er að passa hund afa míns í mánuð! Hann er svona blanda af schaefer og collie! Hann er soldil frekja og þarf alltaf að sitja uppí sófa á meðan hann er að horfa á sjónvarpið! Það fyndna við það er að hann NAGAR NEGLURNAR SÍNAR á meðan hann er að horfa á það!!!!! Þær eru allar útnagaðar og krumpaðar! Afi minn sem á hann sagði að frá því að hann hafði verið 2 ára hefði hann nagað neglurnar en núna er hann 8 ára! Svo urrar hann þegar maður ætlar að klappa honum þegar hann er að naga þær! Og...

Gárinn minn hún Sól (6 álit)

í Gæludýr fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Í sumar dó fuglinn minn Tómóteus:*( Mér fannst svo leiðinlegt að sjá búrið hans alltaf svona tómt þannig að ég fékk mér annan! Ég fékk hann hjá leikfimiskennaranum mínum. Fyrst var hann með eikkað 5 fuglum saman í búri og þeir voru allir svaka taugaveiklaðir eikkað. Eftir mikla umhugsun fékk ég mér gulan kvenkyns gára og ákvað að hún skyldi heita Sól. Fyrst var hún svaka óróleg eikkað og svo stygg og gat ekki komið á putta eða neitt og maður gat ekki hleypt henni út úr búrinu! Það var soldið...

Fyndnar setningar (13 álit)

í Húmor fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Konan mín er stungin af með besta vini mínum! Ég sakna hans! Guð blessi trúleysið! Kristur er svarið! Hver var annars spurningin? Er til vitrænt líf á jörðinni? Nei ég er bara í heimsókn! Jesús lifir!!!!! Og hann áritar biblíuna í Eymundson á þriðjudaginn! Líkbrennsla herra Jóns Jónssonar mun eiga sér stað í Fossvogskirkju kl.14,30 - Minnkiði logann, ég kemst ekki fyrr en klukkan 16,00 Hjálpaðu löggunni! Lemdu þig sjálfur. Síðasti maðurinn sem yfirgefur landið er vinsamlegast beðinn um að...

Kýrin sem baulaði (3 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Kýrin sem var mállaus var með fallegan haus fílaði ekki maus svo við það var hún laus hún gat ekki sungið né leikið garði í svo einn dag hún baulaði þá var hún alveg free. Hún hoppaði og skoppaði allar jarðir um svo að hún myndi ekki heita Kum Hún var nefninlega svo fín og sæt svo að mönnunum fannst hún æt Þeir eltu hana uppi með veðivopnin ljót því að þau myndu vera ansi skjót að myrða litlu kúnna sem var svona sæt með halann litla lúna og hvernig ég læt Hún vildi bara leika sér túnunum á...

Harðbrjósta kelling (3 álit)

í Húmor fyrir 22 árum, 1 mánuði
Maðurinn fann að hann átti lítið eftir af lífinu, hann ætlaði bara að bíða í rúminu sínu eftir að deyja. Skyndilega fann hann þennan yndislega bökunarilm,………. Mmmmmmmm súkkulaðibitakökur. Með einstökum viljastyrk tókst honum að hífa sig fram úr rúminu og staulast fram, þegar hann var svo mikið sem kominn með eina í hendina,sló konan hans á hendurnar á honum með kökukefli og sagði: Láttu kjurt, þær eru fyrir erfidrykkjuna!!!

Ljósku/öndunarmælir (1 álit)

í Húmor fyrir 22 árum, 1 mánuði
Það var einu sinni ljóska sem var að keyra, allt í einu var hún stoppuð af lögregluþjóni sem sagði við hana: þú keyrðir of hratt vina mín en heyrðu bíddu aðeins!!! Löggan náði í hinn löggumanninn og sagði: farðu til ljóskunnar þarna og girtu niður um þig! Hin löggan spurði af hverju og þá sagði hinn: gerðu það bara! Löggann fór eftir þessu! Þegar hann var búinn að girða niður um sig sagði ljóskan: ohhh enn einn öndunarmælirinn!!!

Hvað á ég að gera ? (10 álit)

í Gæludýr fyrir 22 árum, 2 mánuðum
Hvað á ég að gera? Mamma vill ekki að við fáum okkur dýr, en samt getum við það alveg, nema bara að mamma er með pínu ofnæmi fyrir loðnum dýrum og systir mín líka en þær eru aldrei heima svo að það ætti ekki að skipta miklu máli. Ég á páfargauk svona gára, en hann er orðinn svoldið leiðinlegur enda er hann orðinn svo gamall. Mig langar bara svo í hund eða kött, eða eynhver dýr sem eru skemmtileg. Plís segið mér hvað ég á að gera!
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok