Afhverju? Því menn eru ekki settir í sláturhús og þeir borðaðir. Það þykir ekki í lagi að geyma menn á 2 fermetrasvæði þar sem þeir éta gras allan daginn og fá bara að fara út á sumrin. Afþví verslun með menn er óleyfileg. Af því það er litið á skepnur sem hluti. Það er meiri virðing borin fyrir manninum, hefur sína stóru kosti, og sína smáu galla sem þú ert að skammast yfir nú.
Fullkomnun í hverju? Tónlist hefur mismunandi hlutverk, sum verk túlka vonleysi og eymd, önnur örvæntingu, en önnur sigurvímu, önnur fegurð, önnur himneskju o.s.f.v.
Jáa, er byrjað að fara eftir nýjakefinu (grunn-, mið- og efstastig), þeir hafa túlkað miðstigið (sem er á milli fimmta á fjórða stigs) sem fjórða stig, það er misjafnt eftir skólum.
Þetta er bara svona pæling, því einu heimildir manna um að guð hafi skapað einfrumunginn koma ekki fyrr en milljónum ára eftir að hann var skapaður. Segjum að einhver æðri vera sé til og segist hafa skapað fyrsta einfrumunginn, hvernig getur hún sannað það?
En hvernig endar þetta ef öll lönd færu að lækka skatta í eins konar “skattalækkunarkapphlaupi”. Svo held ég að Íslendingar gætu ekki unnið meira en þeir gera nú þegar…
Til hvers? Þeir sem ættu mikla peninga myndu fjárfesta í hermönnum til að verja landsvæði sem þeir myndu eigna sér og leyfa fólki að lifa á landssvæðinu með því loforði að stöðva alla glæpi, ef það borgar sér leigu. Þá erum við komin aftur í lénsveldi, sem þróast á endanum í lýðræði.
Fólk trúir ekki á þau, nema það sé vitlaust. Í vísindum er ALDREI neitt sannað. Aldrei. Gögn eru notuð til að renna stoðum undir kenningar og svo dæmir hver fyrir sig hvaða kenningum honum finnst ver sennilegastar. Sumir taka ekki mark á kenningum því ein af mikilvægum stoðum hennar er rannsókn unnin af vísindamanni sem þeir treysta ekki, þetta er mjög þekkt í sálfræðingasamfélaginu. Allar vísindakenningar eiga tvennt sameiginlegt: Það er hægt að renna stoðum undir þær með rannsóknum og...
Ætli ég verði ekki að segja Bach, þar sem hann samdi söngbálk um kaffi og fallegasta lag sem samið hefur verið fyrir mezzosopranóbó (oboe D'amore). Annars dýrka ég Mozart, maður er smá stund að læra að meta hann, en eftir það er hann bara frábær.
Já ég held að það hafi verið algjör heppni að einhver feneyingur hafi skyndilega ákveðið að ferðast eitthvert útí rassgat og rekast þar á skáeygða þjóð sem var búin að finna upp púðrið, fara svo með það heim, á landsvæði sem voru og eru þau frjósömustu í heiminum og þar endurbættu vísindamenn þessara landa kínversku uppfinninguna svo úr varð byssa. Þetta er sigursaga hvíta mannsins frá A-Ö, þetta er kynstofn sem var svo heppinn að finna frjósamasta landsvæðið á jörðinni fyrir búskap og einni...
Það er enginn tilgangur, við erum bara kolefnisvélar… Sem urðum til fyrir tilviljun á plánetu sem er heppileg fyrir þau efnahvörf sem við, þessar vélar, þurfum á að halda.
Nei. Ef við erum að ráðast inn til miðausturlanda og breyta þar eftir okkar höfði gerum við ráð fyrir mannlegri meðalhegðun; þ.e. reiði. Svo plúsum við það við fanatíska trúarstefnu landanna og margföldum með tækni sem menn ráða yfir. Einfallt reikningsdæmi. Auðveldara hefði verið að dreyfa áróðri úr þotum og ýta undir uppreisnir, hjálpa uppreisnarmönnum í staðinn fyrir að lofa þeim hjálp og láta svo slátra þeim. Ef það myndu ráðast inn kínverjar, hertaka helming Íslands og þvinga þar á...
“Alltaf gaman að órökstuddu skítkasti, æ löf itt. Hafðirðu ekki annars endalaust gagn að þessu?” Spurning hvort þú hafir fattað þennan part svars míns. Ef maður beygir sig niður þá er maður ekki orðinn þriggja ára…
Sko, tilgangur lífsins er greinilega ekki að finna tilganginn, því það er enginn tilgangur í sjálfu sér. Ef þú villt tilgang, búðu hann þá til. Þú ræður því gjörsamlega hvað þú villt gera við líf þitt. Mundu bara eftir afleiðingunum.
Jú að vissu leiti. Samt ekki öllu. Þessi vandamál eru margþætt. Íslamskir æðstu prestar eru líka búnir að mistúlka kóraninn fáránlega fyrir fólkinu. Það er annar þáttur.
Erm, hóhó. Ég sagði þetta með frönsku melluna í kaldhæðni, til að fara niður á sama samræðustig og hann. Svona eins og það gengur betur að tala við 3ja ára börn ef maður beygir sig niður í sömu hæð. Ég var bara orðinn viðurstyggilega þreyttur á einhverju röfli í fólki því því finnst önnur áhugamál eitthvað “undarleg” eða jú, “sick”.
Hins vegar er það eitt að klassíkin og djassin höfðu gríðarleg áhrif hvort á annað og er það almenn staðreynd að það gerir hljóðfæraleikurum gott að læra eitthvað um báðar stefnur, jazzleikarar öðlast skerpu og fínlegri tækni þegar þeir æfa sig í klassík og klassíkerar verða afslappaðri og betur flæðandi þegar þeir æfa sig í jazzi.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..