Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

KataP
KataP Notandi frá fornöld Kvenmaður
108 stig

Svefnsófi óskast! (0 álit)

í Heimilið fyrir 17 árum, 9 mánuðum
Þarf einhver að losna við svefnsófa?? Mig vantar rúm sem getur verið þægilegur sófi á daginn (ekki aukarúm fyrir gesti). Verð samningsatriði. Takk og bless!

bónusbrauð (1 álit)

í Ljóð fyrir 17 árum, 9 mánuðum
það liggur vel á brauðinu í dag ég vildi að ég væri epli, hugsaði ein sneiðin.

Star Wars (0 álit)

í Sci-Fi fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Cool Yoda

Viva la Bam (1 álit)

í Sjónvarpsefni fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Ég veit ekki hvað þessi þáttur er gamall eða hvort hann sé komin til Íslands(fyrir utan þá sem eru með mtv) en þegar ég stillti inn á imbann um daginn, þá var þáttur á sem heitir “Viva la Bam”. Þarna er Bam Margera úr jackass í fylgd með Ryan Dunn og einhverjum gaurum sem ég þekki ekki neitt að gera enn fleiri asnaleg uppátæki. Bam er sérstaklega mikið að níðast á fjölskyldu sinni (eins og þeir sem horfa á jackass vita) sem er pabbi hans og mamma(engin systkini koma fram í þættinum). Í...

Draumur (0 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Ég mun aldrei finna þungann af höndum þínum inn í mínum eins og demantar svo fínir. Ég vildi þig ekki í alvöru þá en ég vil þig nú. Ég var svo mikill asni. Finn þig detta niður inn í þetta tóma herbergi með engin ljós. Mig langar að bjarga, langar að öskra en þú munt alltaf vera minn. Ég þurfti þig ekki í alvöru þá en ég þarfnast þín nú finn að ég er tóm að innan, svo tóm… En þú munt alltaf vera minn.

Kann ekki að lesa (1 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum, 6 mánuðum
Allir þessir stafir, öll þessi orð. Þau mynda setningar… Allt um ástamál, sorgir eða morð. Tannbursta mig, greiði hárið og fer í rúmið. Breiði yfir mig sæng og kveiki á lampa. …Get ekki sofnað… Hvað get ég gert? Þá sá ég á stóru bókinni glampa, ég varð að taka hana upp. Eitt orð og eitt orð, ein og ein setning. Síðurnar styttast, kaflarnir klárast. Kem að lokasíðunni, svaka spennt. Allt í einu mundi ég… Ég hef lesið þessa áður, þessa bók um mig.

Bréfið sem kom of seint (6 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum, 6 mánuðum
Ég er ljóð í stórri bók, ég er lítil stuttsaga. Allar þessar röngu beygjur sem ég tók, ég kann ekki að laga. Ég er lag með texta, sem engin skilur. Það er samt ekki eins og að einhver hafi reynt… Þegar þú last mig, þá sástu allt. Þegar þú hlustaðir á mig, þá heyrðiru allt. Þú hjálpaðir mér að breyta rétt, þó ég gerði ekkert á móti. Þú gerðir allt fyrir mig, en ég fattaði það ekki fyrir öllu þessu dóti. Nú er það of seint, þú ert löngu farinn. Gastu ekki gefið mér aðeins meiri tíma? Hjarta...

Stutt grein! (3 álit)

í Hugi fyrir 20 árum, 8 mánuðum
Hvað heitir notandinn sem skrifaði grein á kvikmyndir sem var svona: ‘Ég er banani…..’?

Bannaður!!! (6 álit)

í Tilveran fyrir 20 árum, 8 mánuðum
Vinur minn hefur verið bannaður á huga en hann veit ekki af hverju. Huganafnið hans er Yainar og hann vill vita af hverju hann var bannaður! Eruði til í að segja mér hver hefur valdið til að banna notendur? Kv, KataP!

Nokkrir ljóskubrandarar (á ensku) (3 álit)

í Húmor fyrir 20 árum, 8 mánuðum
A blonde calls her husband at work one day and asks him, “Can you help me when you get home?” “Sure,” he replies. “What's the problem?” “Well, I started a really hard puzzle and I can't even find the edge pieces.” “Look on the box,” he said. “There's always a picture of what the puzzle is.” “It's a big rooster,” she said. The husband arrives home and tells his blonde wife, “Okay, put the corn flakes back in the box.” Santa Claus, the Easter Bunny, the Tooth Fairy, a smart blonde, and a dumb...

3 skrýtnir (18 álit)

í Húmor fyrir 20 árum, 8 mánuðum
Einu sinni var maður sem var með 50 cm langt tippi. Honum fannst það alltof langt þannig að hann ákvað að fara til nornar sem bjó í bænum og biðja um hjálp. Nornin sagði honum að fara út í skóg að lítilli tjörn þar sem hann myndi finna frosk sem gæti talað. Í hvert sinn sem froskurinn segir nei við hann, minnkaði tippið á honum um 10 cm. Maðurinn ákvað að prófa það og fór að tjörninni. Þar sá hann froskinn og spurði hann „viltu giftast mér?“ „nei“ svaraði froskurinn. Og viti menn, tippið...

ljóskubrandarar (9 álit)

í Húmor fyrir 20 árum, 11 mánuðum
-Hvað sagði ljóskan þegar hún leit ofan í cheerios kassann? ,,Nei, sjáðu! Kleinuhringjafræ!'' -Af hverju er heili ljósku á stærð við baun að morgni dags? Hann bólgnar út yfir nótt. -Hvað skírði ljóskan gælusebrahestinn sinn? Depil. -Hvers vegna fór ljóskan yfir glervegginn? Til að sjá hvað væri hinum megin. -Þrjár ljóskur eru að reyna að skipta um ljósaperu. Ein af þeim ákveður að hringja í Neyðarlínuna. Ljóskan: ,,Við þörfnust aðstoðar. Við erum þrjár ljóskur að skipta um ljósaperu.''...

Presturinn og gamla konan (1 álit)

í Húmor fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Sóknarpresturinn var að heimsækja eitt sóknarbarnið, háaldraða konu. Hann tekur eftir skál fullri af girnilegum hnetum á stofuborðinu. ,,Mætti ég fá mér nokkrar?'spyr hann. ,,Gjörðu svo vel' svarar gamla konan. Eftir klukkustundarspjall stendur presturinn loks upp til að fara. Hann tekur þá eftir því að hann hefur klárað allar hneturnar úr skálinni! ,,Ég bið þig forláts á að hafa klárað allar hneturnar úr skálinni, ég ætlaði bara að taka nokkrar, ,,segir presturinn hálfvandræðalegur. ,,Æ það...

70 mínútur (21 álit)

í Sjónvarpsefni fyrir 21 árum
Ég veit ekki hvað ykkur finnst en mér finnst 70 mínútur vera einn af leiðilegust þáttum í sjónvarpinu í dag (með mörgum öðrum). Til dæmis þá er alltaf það sama í þættinum, það er svona föst dagskrá á hverjum degi og það versta sem gerðist var að Jói hætti og hann og Simmi voru aðalgaurarnir. Svo byrjaði Sveppi að vera með en hann er alveg ágætur en eitt er að bögga mig! ég man þegar þeir voru alveg svakalega á móti reykingum og svoleiðis ógeði og svo sá ég Sveppa vera að reykja. Svo er það'...

Buffy er orðin leiðileg! (7 álit)

í Spenna / Drama fyrir 21 árum
Buffy er orðin leiðileg persóna í þáttunum! Það ætti frekar að hætta með hana og láta einhvern annan slayer í staðinn! Hinar persónurnar eru miklu skemmtilegri og þær halda fjörinu uppi á meðan Buffy er í bólinu með kærastanum !Ég er ekki með stöð2 svo ég er að tala um þættina sem er núna verið að sýna á popptíví. Síðustu þættir hafa eiginlega bara um Willow,Oz og Töru og svo framvegis en ekki um aðalpersónuna!

Hver er besti leikarinn? (0 álit)

í Fræga fólkið fyrir 21 árum, 3 mánuðum
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok