Ég er ljóð í stórri bók,
ég er lítil stuttsaga.
Allar þessar röngu beygjur sem ég tók,
ég kann ekki að laga.
Ég er lag með texta,
sem engin skilur.
Það er samt ekki eins og að einhver hafi reynt…

Þegar þú last mig,
þá sástu allt.
Þegar þú hlustaðir á mig,
þá heyrðiru allt.
Þú hjálpaðir mér að breyta rétt,
þó ég gerði ekkert á móti.
Þú gerðir allt fyrir mig,
en ég fattaði það ekki fyrir öllu þessu dóti.

Nú er það of seint,
þú ert löngu farinn.
Gastu ekki gefið mér aðeins meiri tíma?
Hjarta mitt er brotið og ég er marin.