Hehe, það er eiginlega ekki hægt að spila tvo CM leiki á sama tíma því þá rennur þetta allt saman saman hjá manni og fer í tóma vitleysu. En þess má til gamans geta að ég er búinn að fatta hvernig maður kemst í fleiri free transfer gaura. Maður sem sagt fer í player search, skellir inn einhverju stóru landi og flettir alveg aftast en þar hópast allir no club gaurarnir saman. Ótrúlegt að ég skyldi ekki átta mig á þessu fyrr!