Phil er/var uppnefndur Nodferatu sem skrumskæling á Nosferatu því þó svo að hann sé ógnvekjandi gaur þá var hann alltaf að detta út og dotta á tímabili. Þannig fékk hann nafnið (og skýrði hlöðuna/stúdíóið sitt svo Nodferatu's Lair). Ég gæti samt verið að rugla einhverjum smáatriðum í þessari sögu, ef einhver (eins og Nodferatu sjálfur) kann hana betur má hann endilega segja hana.