nei, ég lendi voða sjaldan í foreldraveseni og ekkert í sambandi við útivistartímann. Þau vita að ég er bara að fara á milli staða (þó að ég komi stundum mjög seint heim…) og að ég hef engan áhuga á að hanga einhversstaðar úti, kannski drekkandi eða eitthvað. Við eigum líka heima í svo rólegum bæ þar sem gerist voða fátt. ^_^
hvaða gráa search bar? ég er ekki með þannig. þú getur sjálfum þér um kennt ef þú ert að downloada einhverjum heimskulegum microsoft aukahlutum. en þér má líka illa við explorer, mér er svosem sama….
Þessi takmarkaði útivistartími skiptir mig engu máli af því að ég fer ekkert eftir honum. Ég er oft að labba heim eða til vinkonu eftir klukkan 10, (ég veit að það er samt ekki það sama og að hanga úti langt fram á nótt) og ég hef ekki verið myrt ennþá…
það gerist ekki hjá mér… ef ég ýti á mitt skrollerí get ég bara flett ofurhratt upp og niður (líka ef ég ýti á link) Lítur út eins og tvær pílur, sem vísa upp og niður með punkt í miðjunni.
mér finnst minn skóli ágætis (er í 10.bekk) Hann er tvískiptur, þannig að í Való er bara 7. - 10. bekkur, en litlu krakkarnir eru í öðrum skóla. (sem er kostur) Samt fullt af pirrandi fólki, en fínn skóli. Grunnskóli er ekki svo slæmur… oftast.
Ég þvæ hárið mitt bara annan hvern dag með sjampói og fer í klippingu af og til. Ég þarf ekki meira en það. En ef hárið þitt er að slitna þá er bara kominn tími á klippingu. (hár á ekki að slitna að ástæðulausu) Það eru samt til einhver sjampó sem eiga að koma í veg fyrir slit… man ekki hvað þau heita.
Einhvers konar málverk, skúlptúr eða listaverk sem fær hrós frá aukaleikurum og/eða er meira en 5 sek á skjánum samfleytt á mjög líklega eftir að verða brennt, skorið eða eyðilagt í enda myndar.eða rænt… Mér finnst það vera algengara.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..