“Sælt veri fólkið!

Þessi undirskriftalisti er til að fá hljómsveitina System Of A Down til landsins. Þeir hafa ekki sýnt áhuga á Íslandi vegna stuðnings Davíðs Oddsonar við Íraksstríðið, því þeim skildist að fólkið á Íslandi styddi Írakstríðið.

Svo nú hefurðu 2 ástæður til að skrifa undir: Fá System of a down til landsins, eða að skrifa undir og lýsa því yfir að þú sért á móti Írakstríðinu og stuðningi Davíðs Oddsonar við það. Skoðanakannanir sýndu að meira en 83 % þjóðarinnar var á móti stríðinu og Davíð Oddson tók sér það bessaleyfi að lýsa yfir stuðningi, sem hann gerði í valdagræðgi og sleikjuskap við George W. Bush.

Skrifið undir fullt nafn og eMail addressu, einnig megið þið skrifa skoðanir eða hvaða hámark penings þið mynduð borga til að koma á tónleikana.

Og ef þið þekkið ekki til System of a down mæli ég með www.systemofadown.com eða www.soadonline.net

Þegar eru komnar nógu margar undirskriftir vonust við til að RR ehf. (sem flutti inn m.a. Velvet Revolver og Iron Maiden) taki eftir þessu, annars leitum við beint til umboðsmanns System of a down.
Kveðja, folk.is/systemofadown

Sincerely,
Þorbergs



http://www.petitiononline.com/serjnco/petition.html

Kvittið, núna.