Það er nú lítið mál. Fáðu lánaðar 3 auka fjarstýringar og byrjaðu vs. leik með 4 leikmönnum, öllum með eitt líf og endalausan tíma í borðinu “Hyrule Temple”. Svo ferðu að gera eitthvað annað, kemur aftur 5 tímum síðar (nývaknaður og hress, kannski), grípur eina fjarstýringuna og sparkar hinum þremur útaf. Leikmenn hafa þá spilað í 20 tíma samtals.