Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Demona
Demona Notandi frá fornöld 33 ára
1.082 stig

Gyllt naglalakk? (21 álit)

í Tíska & útlit fyrir 18 árum, 7 mánuðum
Ég er að leita mér að flottu og góðu gylltu naglalakki fyrir jólin…til að passa við dressið :D Þar sem ég nenni ekki að þræða allar búðir í Kringlunni eða Smáralind þá vildi ég bara vita hvort að þið vissuð um verslun sem selur svona naglalakk? Ég sá silfurlitað í Mótór en annars hef ég ekki tekið eftir neinu… Demona

Neutral (6 álit)

í Húðflúr og götun fyrir 18 árum, 7 mánuðum
Skellti mér í Tattoo & Skart áðan og fékk mér tvö göt, eitt helix öðru megin og annað gat í eyrnasnepilinn hinumegin. Konan sagði mér að ég ætti að nota einhverja Neutral sápu til að þvo þetta þegar ég fer í sturtu. Veit einhver nákvæmlega hvernig sápu hún er að tala um? Ég googlaði þetta en kannaðist ekki við neinar myndir, vill einhver senda mér link á mynd til að ég viti hvað ég á að kaupa? Anyway, ég er ótrúlega ánægð með þetta, það var soldið vont þegar hún setti lokkinn í brjóskina af...

Hár - óánægð (7 álit)

í Tíska & útlit fyrir 18 árum, 7 mánuðum
Málið er að ég fór í klippingu í gær, kom með mynd af hárgreiðslu sem mér fannst ótrúlega smart en endaði einhvernveginn með Prins Valíant - Kleópötru blöndu…Sem ég er alls ekki að fýla >_< Mig langar í miklu styttri styttur til að það standi meira útí loftið. Anyway, ég lét líka setja slétt-perm og hárgreiðslukonan sagði að ég gæti ekki sett strípur í það í sama tímanum, ég yrði að bíða í hálfan til heilan mánuð (hárið þarf víst tíma til að “loka” sér…hvað sem það þýðir). Þessvegna var ég...

Jólagjafir (21 álit)

í Hátíðir fyrir 18 árum, 7 mánuðum
Jæja, ég er eins og venjulega í algjöru veseni með jólagjafirnar. Ég er þó búin að kaupa þrjár gjafir, til mömmu, ömmu og litla frænda. En ég á eftir bróður minn, systur mína og kærasta hennar, pabba, vinkonur mínar og köttinn :D Þessvegna var ég að pæla hvort að þið væruð með einhverjar góðar hugmyndir? Þá sérstaklega handa 23 ára gömlum bróður mínum og 14 ára vinkonum mínum? Ég var að spyrja bróður minn hvað honum langar í og hann talaði um föt og góða spennusögu…er ekki viss um hvort að...

Landafræði & almenn leiðindi (43 álit)

í Sorp fyrir 18 árum, 7 mánuðum
Jæja, ég er að fara í landafræði próf á morgun, fimmta prófið mitt :) …landafræði er jafnframt fagið sem ég er allra lökust í, veit einhver hér hvað hugtökin “Brottfluttir” og “Aðfluttir” þýða í stuttri skilgreiningu? Er annars einhver hér í níunda bekk búinn með landafr. prófið sitt? Ef svo er…var það erfitt? :/ Ég er nefnilega með hundleiðinlegan kennara sem hefur ekki kennt okkur neitt þessa önn. Anyways, ég ætla að koma með nokkrar sp. fyrir ykkur ;) 1. Ef þú fengir að fara í...

Flatbotna skór (19 álit)

í Tíska & útlit fyrir 18 árum, 7 mánuðum
Mig langar svakalega í sparilegt par af flatbotna skóm fyrir jólin og einnig bara flotta casual =) Þessvegna var ég að hugsa hvort að þið eigið eða vitið um einhverja flotta? Endilega látið mig vita hvar ég get keypt ;) Hér koma nokkrir myndalinkar til þess að þið fattið hverju ég er að leita að: 1 2 3 4 5 6 Bætt við 10. desember 2006 - 22:20 Vildi ekki gera nýjann þráð en ég rakst á síðu með fullt af flottum hlutum sem mig langar í :D Hér er síðan, mig langar í allar löngu grifflurnar með...

Þrumuveður (39 álit)

í Sorp fyrir 18 árum, 7 mánuðum
WOW! Sáuð þið eldinguna áðan? Ég er hér í Árbænum og heyrði þessar þvílíkar drunur, leit útum gluggann og sá eldingu blossa yfir himininn…þvílíkt móment, rafblár bjarmi lýsti upp herbergið :D Svo kom haglél og þvílíkur vindur, verslunarferðinni minni er frestað :/ Demona

Götun í eyru (23 álit)

í Húðflúr og götun fyrir 18 árum, 7 mánuðum
Ég er búin að reyna og reyna eins og vitleysingur að fá leyfi hjá foreldrunum fyrir götun í augabrúnina… Því miður gekk það ekki, en þau hafa samþykkt að ég megi fá hvernig göt sem ég vil í eyrun. Ég er nú þegar með eitt gat í hvorum eyrnasnepli en mig langar í sitthvort gatið við hliðina á hinum og einnig gat í brjóskina í öðru eyra (eins og hér, þarna uppi til hægri). Þarf ég að panta tíma á stofu eða mæti ég bara? Hvað myndi þetta líka kosta allt saman? Er alveg hægt að gata þetta allt í...

Kostnaður (33 álit)

í Húðflúr og götun fyrir 18 árum, 8 mánuðum
Veit einhver hvað það kostar að fá sér gat í augabrún og í kringum varirnar (eins og t.d. hér eða hér). Einnig hvað það kostar að fá byrjunarpinna, og úr hverju er best að hafa hann. Læknastáli? Títaníum? Hvernig reynslu hafið þið annars haft af götunum á þessum svæðum, hvort er verra? Hvar létuð þið gera þetta? Mælið þið með einhverjum sérstökum stofum? Ég var að pæla í að fara á Tattú og Skart af því að ég hef ekkert heyrt nema góða hluti þaðan :) Annars veit ég ekki hvort að ég fái...

Stutt? (26 álit)

í Tíska & útlit fyrir 18 árum, 8 mánuðum
Ég hef heillengi pælt í því hvort að það sé góð hugmynd að klippa hárið stutt… Ég var sköllótt til tveggja ára aldurs, algjörlega þar til hárið fór loks að vaxa, svo fékk ég típískt trúðahár :D Var með svakalega krullað hár þá. Svo fór það að vaxa meira, en ég var aldrei ánægð, óskaði mér þess alltaf að fá sítt hár. Ég setti jafnvel viskustykki á hausinn til að þykjast vera síðhærð :') Núna hef ég verið með sítt hár í c.a. þrjú ár, og þá frekar sítt…nær næstum fyrir neðan brjóst. Setti líka...

The Tonight Show - Borat (22 álit)

í Sorp fyrir 18 árum, 8 mánuðum
Váá…horfðuð þið á þetta? :'D Elska Borat, Sacha Baron Cohen er bara snillingur! Það var svo mikil snilld þegar hann fór í rúmið og úr nærunum :''D Seriously folks, horfið á myndina! :O En hvað segið þið…eru ekki allir að fíla hann? >.

Á hann einhver? (6 álit)

í Kettir fyrir 18 árum, 8 mánuðum
Ég var hér inni í tölvunni þegar ég heyrði í bjöllu, ég leit við og sá ósköp fallegann lítinn kisa :) Ég hélt fyrst að þetta væri Simbi minn en sá strax að þetta var allt annar köttur, ég stóð upp en þá hljóp kötturinn út (hann hafði komist inn um svaladyrnar sem ég hafði skilið eftir hálfopnar). Ég fer á eftir honum og sá að Simbi var að leika við hann (ég hef séð þennan kött hér áður, þeir Simbi leika sér stundum saman). Ég reyndi að klappa honum en hann var alveg svakalega hræddur, líka...

Movie leikur :D (104 álit)

í Sorp fyrir 18 árum, 9 mánuðum
Þetta er snilld, er búin að eyða síðasta hálftímanum í að berja í skjáinn og öskra þar til ég fann síðustu myndina…=D >>>>Endilega spreytið ykkur<<<< Mana ykkur til að vinna ;) Demona

Motorola Razr V3i (0 álit)

í Farsímar fyrir 18 árum, 9 mánuðum
Þið sem eigið svona síma, getið þið sagt mér hvernig ég get sett mynd sem ég tók með myndavélinni inní tengiliðina? Ég er búin að prófa allt sem mér dettur í hug! Alltaf þegar ég fer í Contacts>> Edit>> Picture þá eru bara í boði einhverjar hreyfimyndir sem ég hef aldrei séð áður, ekki myndirnar sem eru inní Pictures :/ Takk

Leikir í iPod (3 álit)

í Græjur fyrir 18 árum, 9 mánuðum
Ég sá í GameTV í gær að það væri hægt að downloada leikjum á netinu í iPodinn. Getur einhver bent mér á síður með svona leikjum og hvernig ég get sett þá inná iPodinn? Takk

Það er gaman að vera saman ^^ (22 álit)

í Sorp fyrir 18 árum, 9 mánuðum
Fór á þetta blessaða grímuball í gær, ég var Michael Jackson :H Keypti grímu með áfastri hárkollu og fór í frakka og eitthvað…fólk fattaði ekkert hver ég var :'D En já, þetta ball var ágætt, en draugahúsið sökkaði…ekkert scary, í fyrra var það snilld en núna var ég hálfflissandi allan tímann :) Sá sem fékk verðlaun fyrir frumlegasta búninginn var strákur úr mínum bekk, hann var Smarter Child =D Lang flottasti búningurinn, hann tók huge kassa og málaði hann gráann, skrifaði svo með stórum...

Grímuball, hjálp! (37 álit)

í Sorp fyrir 18 árum, 9 mánuðum
Ég er að fara á grímuball niðrí skóla á morgun en hef ekki hugmynd um hvað ég á að vera :S Hmm, eitthvað frumlegt og scary…það eina sem ég á er gríma af gömlum kalli, ekki það hryllilegasta :C Pælingin er að ég fari út í einhverja búð sem selur grímur eða eitthvað svoleiðis shit, og kaupi…það eina sem mig vantar eru hugmyndir, anyone? =_< Demona

Skype, anyone? (20 álit)

í Sorp fyrir 18 árum, 9 mánuðum
Ég var að setja Skype aftur inná tölvuna eftir langt hlé, en sá svo að allir sem ég talaði mest við eru hættir ;_; Þessvegna var ég að pæla hvort að einhver hér ætti Skype og vildi rabba? ^^ Anyhoo…ég mæli með því að allir kíki inní Fréttablaðið og finni TIGER-blaðið, ég er á forsíðunni :Æ Demona

Hugrekki (6 álit)

í Húmor fyrir 18 árum, 9 mánuðum
Það var gaur í Iðnsskólanum sem var að taka íslenskupróf og síðasta spurningin á prófblaðinu var “Hvað er hugrekki? Rökstyddu svarið.” Nú, nemandinn ákvað að fara ekkert út í flóknar útskýringar og skrifaði: "ÞETTA er hugrekki!" Hahahah :') Bróðir minn sem var í þessum skóla sagði mér frá þessu, sem betur fer hafði kennarinn haft húmor fyrir þessu og gefið honum góða einkunn ^^ En já, whoa…

Þín Verslun (7 álit)

í Sorp fyrir 18 árum, 9 mánuðum
Á þetta fyrirtæki enga heimasíðu?…það eina sem ég finn er þetta :/ Annaðhvort það eða ég er ansi léleg að leita.

Fóstbræður! (24 álit)

í Sorp fyrir 18 árum, 9 mánuðum
Vildi bara láta sorpara vita að núna eru endursýningar af öllum Fóstbræðra-þáttunum frá byrjun til enda =D Þættirnir byrja á laugardaginn og eru kl. 19:35 á Stöð 2. Ég elska þessa þætti, bara snilld :') Ég á þá alla á tölvunni en ætla samt að horfa, bara must ^^ Anyway, ég er með tyggjó….þoli ekki þegar ég er búin að vera með tyggjó það lengi að bragðið er löngu farið úr og ég nenni ekki að fara og henda því "/

Motorola V3 RAZR (1 álit)

í Farsímar fyrir 18 árum, 9 mánuðum
Hvar er ódýrast að kaupa svona síma? Sem sagt með aðgang að öllum kerfum… Ef þið vitið ekki hvaða síma ég á við þá er mynd hér ;) Takk!

Eugh! (53 álit)

í Sorp fyrir 18 árum, 9 mánuðum
Kveikti á sjónvarpinu og var bara að flakka á milli stöðva, svo rakst ég á Sex til sjö þáttinn og sá að Felix var í eins bol og ég á… Gaman að vita það að sköllóttur hommi um fertugt sem er í hrikalega pirrandi þætti fílar það sama og ég :/ Anyhoo, ég sótti um starf í Bónus - Ögurhvarfi í gær, konan sem talaði við okkur virkaði þannig að það væri lost case að sækja um…vonandi fæ ég starf ^.^ En ég var að pæla, þegar maður byrjar að vinna í svona matvörubúð…er ætlast til þess að maður kunni á...

Flonkerton - The Office (30 álit)

í Sorp fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Er að horfa á The Office á Skjá Einum og þau eru að spila “íþrótt” sem kallast Flonkerton. Þau segja að “íþróttin” sé frá Íslandi og Flonkerton sé íslenska…ég veit ekki hvort að framburðurinn sé svona brenglaður en ég hef ekki hugmynd um hvaða orð þetta er :S Veit einhver hvað Flonkerton þýðir? Demona

Spurningar fyrir ykkur (194 álit)

í Sorp fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Ég ætla að búa til einhverjar random spurningar um hvað sem mér datt í hug… Allir ættu að geta svarað =D Well, ekki mikið meira að segja…so here we go! 1. Í hvernig fötum ertu? Ég er í svörtum Nike buxum, síðum svörtum Vila-bol og svörtum Dogma bol með Felix da cat framan á, utan yfir. Svo er ég með appelsínugult belti (ég styð Fylki ^^), er í svartri og hvítri Henson peysu, svo er ég í gráum sokkum og bara bh og nærur :D 2. Hvað heitir iPodinn þinn? Ef þú átt ekki iPod, hvað myndi hann...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok